Styttist í langþráða vegtengingu milli Kópavogs og Reykjavíkur
Framkvæmdir á Arnarnesvegi milli Rjúpnavegar og Breiðsholtsbrautar hafa nú staðið yfir í á fjórða ár og hefur hluti verksins verið tekinn í notkun.
Á gatnamótum Arnarnesvegar og Rjúpnavegar er unnið að gerð hringtorgs og undirganga og mun leiðin á milli Arnarness í Garðabæ og Breiðholts styttast verulega við þessa framkvæmd, sem er þriðji áfangi Arnarnesvegar.
Búið er að taka brú yfir Breiðholtsbraut í notkun og hefur útfærsla hennar verið gagnrýnd. Gert er ráð fyrir því að verkinu ljúki í nóvember.
Heimild: Mbl.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Skrifað undir verksamning vegna Arnarnesvegar við Loftorku og Suðurverk
Efni: Styttist í langþráða vegtengingu milli Kópavogs og Reykjavíkur












