Home Fréttir Í fréttum K16 ehf. byggir 6.700 fermetra stúdentagarða fyrir 4.5 milljarða á Akureyri

K16 ehf. byggir 6.700 fermetra stúdentagarða fyrir 4.5 milljarða á Akureyri

123
0
K16 ehf. byggir 6.700 fermetra stúdentagarða fyrir 4.5 milljarða á Akureyri
Stúdentagarðar við Norðurslóð. Myndir Nordic Office of Architecture

K16 ehf. byggir 6.700 fermetra stúdentagarða fyrir 4.5 milljarða á Akureyri

Framkvæmdir eru hafnar við byggingu nýrra stúdentagarða Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri, FÉSTA, við Norðurslóð 3, 5 og 7. K16 ehf. annast byggingu þriggja húsa sem verða samtals um 6.700 fermetrar. Tilboð fyrirtækisins nam tæpum 4,5 milljörðum króna og var 94,8% af kostnaðaráætlun. Fyrstu skóflustungurnar voru teknar að framkvæmdinni á miðvikudag.

Fyrstu skóflustungurnar að nýju stúdentagörðunum voru teknar 2. september en framkvæmdir eiga að standa fram á sumar 2029.

FÉSTA hefur samið við K16 ehf. um byggingu stúdentagarðanna.

Tilboð K16 ehf.  í verkið hljóðaði upp á 4.499.044.168 krónur, en kostnaðaráætlun verkkaupa var 4.747.396.319 krónur.

Tilboðið var því um 248 milljónum króna undir kostnaðaráætlun, eða 94,8% af áætlun.

Alls bárust fimm tilboð í framkvæmdina. BB-Byggingar buðu rúma 4,65 milljarða króna, Eykt tæpa 4,77 milljarða, Ístak rúma 5,04 milljarða og GG-Verk tæpa 5,45 milljarða króna.

Þrjár byggingar við Norðurslóð

Nýju stúdentagarðarnir rísa við Norðurslóð 3, 5 og 7 á háskólasvæðinu á Akureyri, meðfram Dalsbraut frá Borgarbraut upp að Norðurslóð.

Um er að ræða þrjár byggingar sem verða samtals um 6.700 fermetrar.

Þær munu bera nöfnin Þingvellir, Sólvellir og Akurvellir.

Í húsunum verða 40 tveggja herbergja íbúðir, 20 stúdíóíbúðir og 64 einstaklingsherbergi með sérbaðherbergi. Samtals er því um 124 nýjar búsetueiningar að ræða.

Auk íbúða og herbergja verða í byggingunum stoðrými, sameiginleg rými og aðstaða fyrir starfsfólk.

FÉSTA á nú 164 búsetueiningar og mun framkvæmdin stórauka framboð minni búsetueininga fyrir nemendur við Háskólann á Akureyri.

Nýir stúdentagarðar

Fyrsti áfanginn tilbúinn 2028

Framkvæmdinni verður áfangaskipt.

Miðað er við að fyrsti áfanginn, byggingin Þingvellir, verði tilbúinn í júlí 2028 þannig að nemendur geti flutt þar inn fyrir skólaárið 2028–2029.

Í Þingvöllum verða 64 einstaklingsherbergi ásamt sameiginlegum rýmum og annarri aðstöðu.

Gert er ráð fyrir að framkvæmdum við allar þrjár byggingarnar verði lokið sumarið 2029 og stúdentagarðarnir verði að fullu tilbúnir fyrir skólaárið 2029–2030.

Rafmenn, Blikkrás, Norðurlagnir og GV gröfur meðal undirverktaka

K16 verður aðalverktaki framkvæmdarinnar en Akureyri.net greinir frá því að meðal helstu undirverktaka verði Rafmenn, Blikkrás, Norðurlagnir og GV gröfur.

Innifalið í tilboði K16 er meðal annars jarðvinna og aðstaða, burðarvirki, lagnir og raflagnir auk frágangs innan- og utanhúss og framkvæmda á lóð.

Kaup og uppsetning á lyftum, aðgangsstýringar- og öryggiskerfum, netbúnaði og lausabúnaði eru hins vegar utan tilboðsins.

Framkvæmdin fjármögnuð í gegnum HMS

Samkvæmt upplýsingum Akureyri.net er framkvæmdin þegar 100% fjármögnuð í gegnum Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

FÉSTA hyggst jafnframt selja tvær eldri fasteignir sem stofnunin hefur nýtt undir stúdentaíbúðir, annars vegar í Kjalarsíðu 1 og hins vegar Útstein við Skarðshlíð 46.

Andvirði eignanna verður hluti af fjármögnun nýbygginganna og á að draga úr skuldsetningu FÉSTA.

Hönnun stúdentagarðanna byggir á vinningstillögu Nordic Office of Architecture, sem bar sigur úr býtum í hugmyndasamkeppni um verkefnið. Alls bárust ellefu tillögur í samkeppnina.

Heimild: Háskólinn á Akureyri

Eldri frétt á BYGGINGAR.IS

Efni: K16 byggir 6.700 fermetra stúdentagarða fyrir 4,5 milljarða á A