Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir hafnar við nýtt hverfi í Garðabæ

Framkvæmdir hafnar við nýtt hverfi í Garðabæ

93
0
Framkvæmdir hafnar við nýtt hverfi í Garðabæ
Nýtt 450 íbúða hverfi með heilsukjarna og auka skrifstofu- og verslunarhúsnæði mun rísa í Arnarlandi á komandi árum. Gatnagerð hófst í vikunni. mbl.is/Karítas

Framkvæmdir hafnar við nýtt hverfi í Garðabæ

Vinnuvélar eru nú komnar á fullt skrið við fyrstu gatnagerðarverkefnin í nýju hverfi í Garðabæ sem nefnist Arnarland. Er hverfið staðsett milli Arnarness og Smárahverfis, en þar mun rísa blönduð byggð með um 450 íbúðum og um 36 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði þegar hverfið verður fullbyggt.

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabæ, segir í samtali við mbl.is að gatnagerðin hafi verið boðin út í vor og nú séu fyrstu verkefnin komin í gang. „Þetta er byrjunin,“ segir hann. Í framhaldinu segir hann að uppbyggingaraðili muni leggja inn byggingarumsóknir og að hefja framkvæmdir við fyrsta hluta uppbyggingarinnar. Verður það atvinnuhúsnæði næst Hafnarfjarðarvegi. Segir Almar að líklega fari framkvæmdir við fyrstu húsin af stað núna í vetur, en að verktakinn sjái þó um að stilla upp sinni tímalínu.

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabæ.

Arnarlandið er í eigu Arnarlands ehf., en eigandi þess er Arcus ehf., sem er systurfélag verktakafyrirtækisins ÞG verk. Áður höfðu Landey ehf. og Fasteignafélagið Akurey ehf. átt landsvæðið og skipulagt svæðið. Fyrir um ári síðan keypti svo Arcus félagið og svæðið í heild sinni.

Austar á svæðinu (nær á myndinni) verða fjölbýlishús sem verða 2-6 hæða en nær Hafnarfjarðarvegi verður heilsuklasi auk atvinnu- og þjónustuhúsnæðis sem mun verða allt að 7 hæðir. Byrjað verður á þeim hluta framkvæmdanna. mbl.is/Karítas

Byggðin verður í raun tvískipt, en næst Hafnarfjarðarvegi verða atvinnuhúsnæði í allt að 7 hæða húsum. Mest mun þar fara fyrir svokölluðum heilsuklasa upp á 26.500 fermetra, en til viðbótar verður blönduð skrifstofu,- þjónustu- og verslunarstarfsemi auk leikskóla. Mun fyrirhuguð lega borgarlínu svo liggja austan við þetta atvinnuhúsnæði, en austan við borgarlínuna er svo skipulagt fjölbýlishúsabyggð í 2-6 hæða húsum.

Horft til norðurs. Fyrir neðan Arnarlandi er íþróttasvæðið í Smáranum og Kópavogsdalurinn. mbl.is/Karítas

Heimild: Mbl.is

Efni: Framkvæmdir hafnar við nýtt hverfi í Garðabæ