Verktakafyrirtækið, sem er í eigu Íslenskra aðalverktaka og svissneska fyrirtækisins Marti Contractors, annaðist gangagröft og vegagerð milli Hnífsdals og Bolungarvíkur á árunum 2008 til 2010.
Fyrirtækið krafðist fyrir dómi viðbótargreiðslu upp á hátt í 390 milljónir króna þar sem jarðfræðiaðstæður hafi verið verri en útboðslýsing gaf til kynna og stórfelldar tafir sem urðu á verkinu af þeim sökum hafi verið langt umfram það sem ætla mátti. Vegagerðin hafnaði kröfunni.
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst ekki á málatilbúnað stefnanda en dæmdi verktakafyrirtækinu 35 milljónir króna í bætur frá Vegagerðinni vegna tafa sem urðu við framkvæmdina vegna setlaga sem dómurinn, sem skipaður var sérfróðum meðdómsmönnum, taldi óvenju óstöðug og erfið viðureignar.
Heimild: Ruv.is