Home Fréttir Í fréttum 06.10.2026 Hvalfjarðarsveit býður út byggingu nýs leikskóla Skýjaborgar

06.10.2026 Hvalfjarðarsveit býður út byggingu nýs leikskóla Skýjaborgar

231
0
K16 ehf. lægst með 870 milljóna tilboð í leikskólann Skýjaborg
Teikning: andrúm arkitektar

Hvalfjarðarsveit býður út byggingu nýs leikskóla Skýjaborgar

Hvalfjarðarsveit óskar eftir tilboðum í byggingu nýs leikskóla, Skýjaborg, í Hvalfjarðarsveit.

Verkið felst í jarðvinnu, uppsteypu byggingar og fullnaðarfrágangi að utan og innanverðu ásamt lóðafrágangi.

Helstu magntölur:

  • Uppgröftur 1.826 m³
  • Fyllingar 1.576 m³
  • Steypumót 894 m²
  • Járnbending 24.899 kg
  • Steinsteypa 329 m³
  • Forsteyptar einingar 2.485 m²
  • Gluggar og glerveggir 25 stk.
  • Útihurðir 10 stk.
  • Léttir innveggir 155 m²

Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi í gegnum útboðsvef COWI frá kl. 17:00 þann 1. september 2026.

Tilboðum skal skilað með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef COWI eigi síðar en kl. 15:00 þann 6. október 2026. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar tilboði hefur verið skilað á útboðsvefinn. Fundargerð opnunarfundar verður send öllum bjóðendum.

Sjá frekar.

Efni: Hvalfjarðarsveit býður út byggingu nýs leikskóla Skýjaborgar