Yfir 59 þúsund fermetrar í byggingu
Uppbygging á nýju iðnaðarsvæði Hampiðjunnar í Auric á Indlandi er sögð ganga vel.
Verið er að byggja tvo stóra framleiðslusali, 28 þúsund fermetra hvorn, ásamt tólf hundruð fermetra þjónustubyggingu fyrir starfsfólk og tvö þúsund fermetra skrifstofuhúsnæði.
Fram kemur á vef Hampiðjunnar að heildarbyggingarmagn þessa áfanga sé 59.200 fermetrar, en á landinu sé byggingarleyfi fyrir sextán þúsund fermetrum til viðbótar sem verður nýtt síðar.
Eitt hús eins og fjórir fótboltavellir
„Til að setja stærðina á framleiðslusölunum í samhengi þá þekur hvor bygging fyrir sig flatarmál sem samsvarar fjórum fótboltavöllum í fullri stærð,“ segir á vefnum.
Fyrri stóra byggingin er sögð komin vel á veg og búist er við að hún verði tilbúin til afhendingar í lok október.
„Sú bygging er ætluð fyrir framleiðslu á fiskeldisnetum. Hin stóra byggingin er fyrir framleiðslu á netum fyrir bæði fiskeldi og veiðarfæri og er gert ráð fyrir að hún verði tilbúin um áramótin.“
Skrifstofu- og þjónustubyggingarnar fylgi síðan fljótlega í byrjun næsta árs.
Uppbygging í kjölfar kaupa á Kohinoor
Uppbyggingin í Auric er sögð hafa hafist í kjölfar kaupa Hampiðjunnar á indverska fyrirtækinu Kohinoor og henni sé ætlað að styrkja framleiðslugetu samstæðunnar á sviði fiskeldis og veiðarfæra.
„Þegar starfsemin í Auric verður komin í fullan gang er gert ráð fyrir að þar starfi um 750 manns.“
Uppbyggingin er sögð búa Hampiðjunni aukið svigrúm til að færa út kvíarnar í framleiðslu fiskeldisneta og neta fyrir veiðarfæri og nýta jafnframt þekkingu og reynslu Kohinoor og Hampiðjunnar á þessum sviðum.
Hér fyrir neðan má sjá nýtt drónamyndband sem Hampiðjan birti af byggingarstaðnum.
Heimild: Mbl.is
Efni: Yfir 59 þúsund fermetrar í byggingu












