Home Fréttir Í fréttum Þung staða á markaðnum

Þung staða á markaðnum

131
0
Þung staða á markaðnum
Staðan í byggingariðnaði og á fasteignamarkaði þarf ekki að koma á óvart, að sögn forstjóra BYKO. mbl.is/Anton Brink

Þung staða á markaðnum

„Samdrátturinn er greinilegur og staðan er alvarleg,“ segir Sigurður Brynjar Pálsson forstjóri BYKO. Sala á ýmsum grófari gerðum byggingarefnis minnkar nú hratt. Sömuleiðis sala á sementi, hún fór niður um 15% á fyrri helmingi ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Framleiðsla hjá steypustöðvum hefur minnkað í svipuðum takti, eða um 36.000 rúmmetra í ár skv. áætlun. Smásölumarkaður byggingarvara helst hins vegar í jafnvægi.

„Samdráttarskeið koma alltaf reglulega og svo uppsveifla. Ég hef séð þetta reglulega,“ segir Björn Ingi Viktorsson forstjóri Steypustöðvarinnar. Þróunina nú segir hann einkum helgast af því að minna sé byggt af íbúðarhúsnæði en var til skamms tíma. Vitað er að mikill fjöldi íbúða er óseldur, svo sem í nýjum þyrpingum fjölbýlishúsa víða á höfuðborgarsvæðinu.

„Atvinnulausum í greininni er að fjölga, starfandi í greininni fækkar og vanskil eru að aukast. Við erum því ekki lengur að horfa á einstaka veikleikamerki heldur samfellda þróun, sem veldur áhyggjum,“ segir Ingólfur Bender hagfræðingur SI.

Staðan í byggingariðnaði og á fasteignamarkaði þarf ekki að koma á óvart, að sögn forstjóra BYKO. „Hið opinbera eyðir um efni fram sem aftur skapar spennu í hagkerfinu; verðbólgu sem svarað er með háum vöxtum,“ segir Sigurður Brynjar sem vill að stjórnvöld hefji aðhaldsaðgerðir.

Þrátt fyrir breyttar aðstæður á fasteignamarkaði hefur fyrstu kaupendum ekki fækkað og hlutfall þeirra af kaupendum haldist nokkuð stöðugt. Kemur þetta fram í erindi Tómasar Brynjólfssonar, varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika hjá Seðlabanka Íslands, sem hann hélt á haustfundi HMS í gær.

Fjármögnun fasteignakaupa reynist mörgum þó þungur róður. Rúmlega sex af hverjum tíu háskólamenntuðum, 34 ára og yngri, sem keypt hafa fasteign fengu fjárhagsaðstoð frá öðrum en lánastofnunum. Bent er á að háskólamenntaðar stéttir hafi setið eftir í launum og glími við umtalsvert erfiðari námslánabyrði en eldri kynslóðir.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.

Heimild: Mbl.is

Efni: Þung staða á markaðnum