18.000 fermetra stórverk Ístaks í Nuuk tekið í notkun
Nýr 18.000 fermetra skóli sem Ístak hefur byggt í Nuuk á Grænlandi hefur verið tekinn í notkun eftir langt og umfangsmikið framkvæmdarferli. Ístak var alverktaki við byggingu skólans, Atuarfik Inussuk, sem er eitt umfangsmesta verkefni sem íslenskt verktakafyrirtæki hefur tekið að sér erlendis.
BYGGINGAR.IS hefur fylgst með verkefninu allt frá því að Ístak undirritaði verksamning um byggingu skólans árið 2019.
Ístak greindi frá tímamótunum 27. ágúst og segir skólann risavaxið samfélagsverkefni í miðbæ Nuuk.

18.000 fermetra stórverk Ístaks í Nuuk tekið í notkun
Heildarstærð byggingarinnar er um 18.000 fermetrar. Skólinn er ætlaður fyrir allt að 1.200 börn auk þess sem sérstök leikskólabygging er fyrir um 120 börn.
Ístak sá jafnframt um frágang allrar skólalóðarinnar og bílastæða.
Um umfangsmikla framkvæmd var að ræða. Samkvæmt upplýsingum frá Ístaki fóru meðal annars í verkið:
- rúmlega 5.700 rúmmetrar af steypu,
- um 24.000 fermetrar af mótum,
- 518 tonn af járnbendingu.
Skólinn samanstendur af sjö samtengdum húsum. Utan hefðbundins skólatíma er jafnframt gert ráð fyrir að húsnæðið nýtist sem menningar- og félagsmiðstöð fyrir íbúa Nuuk.

Upphaflegi samningurinn 615 milljónir danskra króna
Ístak undirritaði samning um hönnun og byggingu skólans í desember 2019.
BYGGINGAR.IS greindi þá frá því að verksamningurinn hljóðaði upp á 615 milljónir danskra króna, sem þá samsvaraði um ellefu milljörðum íslenskra króna.
Verkið var boðið út sem alútboð og Ístak tók að sér byggingu skólans í alverktöku. Verkís annaðist verkfræðihönnun verkefnisins.
Þegar samningurinn var undirritaður var verkefnið eitt það stærsta sem Ístak hafði tekið að sér og stærsti verksamningur sem bæjaryfirvöld í Nuuk höfðu gert.

Opnunin tafðist um tvö skólaár
Framkvæmdaferlið varð mun lengra en upphaflega var ráðgert.
Covid-19 heimsfaraldurinn hafði áhrif á framkvæmdirnar og síðar kom upp ágreiningur milli Ístaks og bæjaryfirvalda í Nuuk um brunavarnir byggingarinnar.
Skólinn stóð því fullbúinn án þess að hægt væri að taka hann í notkun.
BYGGINGAR.IS greindi frá því í október 2025 að samkomulag hefði loks náðst milli Ístaks og bæjaryfirvalda. Lausnin fól meðal annars í sér uppsetningu vatnsúðunarkerfis í byggingunum.
Opnun skólans tafðist alls um tvö skólaár.
Nú er þeim kafla lokið og nemendur eru fluttir inn í Atuarfik Inussuk.

Stærsti skóli Grænlands
Atuarfik Inussuk er stærsta skólabygging Grænlands og stendur við aðalgötuna í miðborg Nuuk.
Nafnið Inussuk merkir „varða“ á grænlensku og vísar til manngerðra grjóthrúgna sem hafa um kynslóðir verið kennileiti í grænlensku landslagi.
Með opnun skólans lýkur einu stærsta erlenda byggingarverkefni íslensks verktakafyrirtækis síðustu ára.
Heimildir: Ístak hf.
Efni: 18.000 fermetra stórverk Ístaks í Nuuk tekið í notkun












