Home Fréttir Í fréttum Nýr fram­kvæmda­stjóri Lotu

Nýr fram­kvæmda­stjóri Lotu

92
0
Nýr fram­kvæmda­stjóri Lotu
Ólöf er verkfræðingur að mennt og býr yfir víðtækri reynslu úr orkugeiranum, stjórnun og ráðgjöf. Ljósmynd: Aðsend mynd

Nýr fram­kvæmda­stjóri Lotu

Ólöf Helgadóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Lotu af Trausta Björgvinssyni.

Ólöf Helgadóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Lotu af Trausta Björgvinssyni. Ráðning hennar markar tímamót í sögu fyrirtækisins en Ólöf er fyrsta konan til að gegna starfi framkvæmdastjóra Lotu.

Lota er íslensk verkfræðistofa sem veitir ráðgjöf og þjónustu á fjölbreyttum sviðum verkfræði.

Í tilkynningu segir að Ólöf þekki starfsemi Lotu vel og hafi gegnt fjölbreyttum lykilhlutverkum innan fyrirtækisins. Hún hefur meðal annars stýrt orkusviði Lotu og setið í stjórn og framkvæmdastjórn fyrirtækisins.

Ólöf er verkfræðingur að mennt og býr yfir víðtækri reynslu úr orkugeiranum, stjórnun og ráðgjöf. Hún hefur á ferli sínum komið að fjölbreyttum og umfangsmiklum verkefnum tengdum raforkukerfum og þróun orkuinnviða.

„Það er bæði spennandi og mikil ábyrgð að taka við framkvæmdastjórn Lotu. Hér starfar öflugur hópur fólks með mikla sérþekkingu og metnað fyrir því að skapa góðar lausnir fyrir viðskiptavini okkar.

Ég þekki vel þann sterka grunn sem hefur verið byggður upp innan Lotu og hlakka til að leiða fyrirtækið áfram, með fólkið okkar, fagmennsku og áframhaldandi þróun að leiðarljósi,“ segir Ólöf Helgadóttir, framkvæmdastjóri Lotu.

Heimild: Vb.is

Efni: Nýr fram­kvæmda­stjóri Lotu