Þrjú tilboð í niðurrif Laugasólar – lægsta tilboð aðeins 35% af kostnaðaráætlun
Þrjú tilboð bárust í niðurrif leikskólabyggingarinnar Laugasólar við Leirulæk 6 í Reykjavík. H2Orka ehf. átti lægsta tilboðið, rúmar 25,1 milljón króna, sem nemur aðeins 35,3% af 71,2 milljóna króna kostnaðaráætlun Reykjavíkurborgar.
Tilboð voru opnuð hjá Reykjavíkurborg í morgun, 26. ágúst, í útboði umhverfis- og skipulagssviðs nr. 16344, „Laugasól – Niðurrif“.
Tilboðin voru eftirfarandi:
| Bjóðandi | Tilboð m/vsk. | Hlutfall af áætlun |
|---|---|---|
| H2Orka ehf. | 25.140.559 kr. | 35,30% |
| Fagurverk ehf. | 28.650.000 kr. | 40,22% |
| Berserkir ehf. | 34.254.920 kr. | 48,09% |
| Kostnaðaráætlun | 71.225.000 kr. | 100,00% |
Öll þrjú tilboðin eru þannig langt undir kostnaðaráætlun verkkaupa. Lægsta tilboðið er rúmum 46 milljónum króna undir áætlun, eða 64,7% lægra.
Jafnvel hæsta tilboðið, frá Berserkjum ehf., er aðeins 48,09% af kostnaðaráætlun.
1.160 fermetra bygging verður rifin
Eins og BYGGINGAR.IS hefur áður fjallað um felst verkið í að rífa alla byggingu Laugasólar – Laugaborgar við Leirulæk 6 og fjarlægja hana af lóðinni.
Húsið er um 1.160 fermetrar, steinsteypt á tveimur hæðum, og var upphaflega reist árið 1965. Að niðurrifi loknu á meðal annars að fylla í grunn og grófjafna svæðið.
Áætlað er samkvæmt útboðsgögnum að framkvæmdunum verði lokið 30. október 2026.
BYGGINGAR.IS hefur áður fjallað ítarlega um málið. Upphaflega stóð til að ráðast í umfangsmiklar endurbætur á Laugasól og hófust þær framkvæmdir árið 2024. Þær voru hins vegar stöðvaðar þegar í ljós kom að ástand byggingar, jarðvegs og undirstaðna var verra en gert hafði verið ráð fyrir.
Borgarráð samþykkti síðar að stöðva endurbæturnar og heimila niðurrif hússins svo unnt yrði að hanna og reisa nýjan leikskóla á lóðinni.
Fyrri umfjöllun BYGGINGAR.IS: Samþykkja að leikskólabyggingin verði rifin
Heimild: Reykjavíkborg
Efni: Þrjú tilboð í niðurrif Laugasólar – lægsta tilboð aðeins 35% af kostnaðaráætlun












