Grunur um myglu raskar skólastarfi í Hlíðarskóla
Grunur um myglu hefur sett skólastarf í Hlíðarskóla á Akureyri úr skorðum. Húsið sem myglan fannst í er innsiglað og hvorki nemendur né starfsfólk fær að fara inn.
Í Hlíðarskóla eru 20 nemendur sem ekki ná að blómstra í hefðbundnu skólastarfi. Hópurinn er viðkvæmur og má ekki við miklu raski. Það voru því undrandi foreldrar sem mættu á skólasetningu í morgun og fengu að heyra að önnur af tveimur skólabyggingum yrði ekki í notkun fyrst um sinn.
Grunur kom upp um myglu í efra húsinu fyrir þó nokkru síðan. Fasteignir Akureyrarbæjar tóku húsnæðið út en fundu ekki. Það var svo á miðvikudaginn sem lögn sprakk í eldhúsinu og í ljós kom mygla á bakvið innréttingu.
Húsið er innsiglað og engum hleypt inn, hvorki starfsmanni né nemanda. Kennarar geta ekki sótt gögn í húsið og því er ljóst að þetta hefur töluverð áhrif á skólastarf.
Bæjarstjórinn á Akureyri vill bregðast hratt við.
Heimild: Ruv.is
Efni: Grunur um myglu raskar skólastarfi í Hlíðarskóla












