Home Fréttir Í fréttum Borgarverk lægst í jarðvinnu við nýtt öryggisfangelsi á Stóra-Hrauni

Borgarverk lægst í jarðvinnu við nýtt öryggisfangelsi á Stóra-Hrauni

623
0
Borgarverk lægst í jarðvinnu við nýtt öryggisfangelsi á Stóra-Hrauni
Mynd: Stjórnarráðið

Borgarverk lægst í jarðvinnu við nýtt öryggisfangelsi á Stóra-Hrauni

Borgarverk ehf. átti lægsta tilboðið í jarðvinnu vegna nýs öryggisfangelsis á Stóra-Hrauni, tæplega 993,1 milljón króna. Alls bárust sjö tilboð í verkið og voru sex þeirra yfir einum milljarði króna.

Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir opnaði 20. ágúst tilboð í jarðvinnu vegna fyrirhugaðs öryggisfangelsis á Stóra-Hrauni. Útboðið ber númerið 25-0115 og er nefnt „Stora-Hraun Security prison – Earthworks“ í opnunarskýrslu FSRE.

Borgarverk með eina tilboðið undir milljarði

Sjö verktakar skiluðu tilboðum í framkvæmdina. Borgarverk ehf. átti lægsta tilboðið, 993.093.626 krónur.

Jarðval sf. kom næst með tilboð upp á rúmlega 1.024,6 milljónir króna og Óskatak ehf. var með þriðja lægsta tilboðið, rúmlega 1.052,1 milljón króna.

Tilboðin voru eftirfarandi:

Bjóðandi Tilboð
Borgarverk ehf. 993.093.626 kr.
Jarðval sf. 1.024.634.000 kr.
Óskatak ehf. 1.052.129.950 kr.
Dráttarbílar Vélaleiga ehf. 1.061.022.384 kr.
Fossvélar ehf. 1.104.515.373 kr.
Magnús Ingberg Jónsson ehf. 1.251.719.750 kr.
Berg Verktakar ehf. 1.254.740.700 kr.

Munurinn á lægsta og hæsta tilboði er því tæplega 262 milljónir króna, eða um 26% miðað við lægsta tilboðið.

Heimild: Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir 

Efni: Borgarverk lægst í jarðvinnu við nýtt öryggisfangelsi á Stóra-Hrauni