Home Fréttir Í fréttum Kallar eftir endurskoðun veggjalda

Kallar eftir endurskoðun veggjalda

35
0
Kallar eftir endurskoðun veggjalda
Fjórar tvíbreiðar brýr yfir Hornafjarðarfljót stytta hringveginn. Ljósmynd/Aðalsteinn Aðalsteinsson

Kallar eftir endurskoðun veggjalda

Bæjarstjóri Hornafjarðar kallar eftir því að stjórnvöld endurskoði upphæð veggjalda um nýjan veg um Hornafjarðarfljót. Kostnaðurinn sé of hár. Stök ferð kostar 1.500 krónur en hámarksgjald fyrir hvert ökutæki er 18.750 krónur á mánuði. Til stendur að hefja gjaldtöku þann 1. september nk.

Bæjarstjórinn segir fólk í nærliggjandi sveitum, í Suðursveit og á Mýrum, reiða sig alfarið á þjónustu á Höfn. Enginn skóli sé til að mynda í þessum sveitum.

Innviðaráðherra segist sýna áhyggjum Hornfirðinga skilning en bendir á að ávinningur vegna vegkaflans sé mikill. Hringvegurinn styttist um tólf kílómetra við vígslu vegarins í lok júní. Því spari fólk tíma, eldsneyti og gjöld.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.

Heimild: Mbl.is

Efni: Kallar eftir endurskoðun veggjalda