Home Fréttir Í fréttum Skagafjörður skuldbatt sig til hundruð milljóna framkvæmda

Skagafjörður skuldbatt sig til hundruð milljóna framkvæmda

94
0
Skagafjörður skuldbatt sig til hundruð milljóna framkvæmda
Hólar eru nú í eigu sveitarfélagsins. mbl.is/Sigurður Bogi

Skagafjörður skuldbatt sig til hundruð milljóna framkvæmda

Sveitarfélagið Skagafjörður hefur skuldbundið sig til 376 milljóna króna fráveituframkvæmda á Hólum í Hjaltadal samkvæmt nýlegu samkomulagi við íslenska ríkið.

Á móti greiðir ríkið 150 milljónir króna sem hlutdeild sína í framkvæmdunum. Mismunurinn nemur því 226 milljónum króna, án þess að tekið sé tillit til annarra þátta samkomulagsins.

Skuldbindingin kemur fram í viðauka við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.

Fær eignir metnar á 184 milljónir

Samkomulag ríkisins og Skagafjarðar var undirritað í maí og hefur áður verið greint frá því. Með því eignast sveitarfélagið lóðir og lendur á Hólum í Hjaltadal auk lands í Nýrækt í Fljótum.

Eignirnar eru metnar á samtals 183,6 milljónir króna.

Samkvæmt samkomulaginu tekur Skagafjörður jafnframt yfir ýmsa innviði á Hólum og skuldbindur sig til að ráðast í endurbætur á fráveitukerfinu. Ríkið leggur 150 milljónir króna til framkvæmdanna.

Sveitarfélagið þarf að hefja endurbætur og viðhald fráveitunnar innan árs frá undirritun samkomulagsins og ljúka framkvæmdunum innan fimm ára.

Heimild: Mbl.is

Efni:  Skagafjörður skuldbatt sig til hundruð milljóna framkvæmda