Stjörnublikk ehf. fær loftræsiverk í meðferðarkjarna Nýs Landspítala
Nýr Landspítali ohf. hefur samið við Stjörnublikk ehf. um uppsetningu loftræsikerfis í nýjum meðferðarkjarna við Hringbraut. Verksamningurinn var undirritaður 20 ágúst sl.
Samningurinn tekur til loftræsikerfis frá kjallara K2 og upp á fjórðu hæð meðferðarkjarnans. Um er að ræða umfangsmikinn verkþátt í uppbyggingu hússins, þar sem innanhússfrágangur og uppsetning tæknikerfa færist nú sífellt meira í forgrunn.
Stjörnublikk fær loftræsiverk í meðferðarkjarna
Fyrir undirritun verksamningsins fór fram forval vegna verkefnisins.
Þátttökubeiðnir bárust frá fjórum fyrirtækjum þegar forvalið var opnað 3. október 2025:
- Stjörnublikk ehf.
- Blikksmiðurinn hf.
- Ísloft ehf.
- Blikksmíði ehf.
Niðurstaða innkaupaferlisins liggur nú fyrir og hefur Stjörnublikk verið valið til verksins.
BYGGINGAR.IS greindi frá forvalinu í október á síðasta ári.
Verkið nær yfir stóran hluta meðferðarkjarnans
Nýr meðferðarkjarni er um 70 þúsund fermetrar að stærð og á átta hæðum, þar af tveimur neðanjarðar.
Samkvæmt gögnum sem birt voru við forvalið tók innkaupaferlið til allt að 55 þúsund fermetra í meðferðarkjarnanum. Meginhluti legudeilda á fimmtu og sjöttu hæð var þó undanskilinn.
Gert var ráð fyrir að verktaki legði loftræsilagnir í öll lagnaskökt upp í gegnum fimmtu og sjöttu hæð og út um þak.
Ákveðin sérhæfð rými voru jafnframt undanskilin fullnaðarfrágangi þar sem hönnun þeirra var ekki lokið eða endanleg ákvörðun um útfærslu ekki fyrir hendi þegar forvalið fór fram.
Pípulagnir boðnar út sérstaklega
Loftræsiverkið er einn af mörgum stórum tæknilegum verkþáttum við innanhússfrágang meðferðarkjarnans.
Í forvalsgögnum kom fram að pípulagnir vegna meðal annars neysluvatns, þrifatækja, frárennslis, hita, kælingar og slökkvikerfa yrðu boðnar út í sérstöku útboði.
NLSH áskildi sér jafnframt rétt til að semja við verktaka um viðbótarverk, meðal annars vegna frágangs þeirra sérmerktu svæða sem ekki féllu undir upphaflegt umfang loftræsiverksins.
Heimild: NLSH ohf.
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS : Opnun í forvali vegna loftræsingar í meðferðarkjarna
Efni: Stjörnublikk ehf. fær loftræsiverk í meðferðarkjarna Nýs Landspítala












