
Kaupa Hádegismóa 8 af Brimborg fyrir 2.6 milljarða
„Eignin er skýrt dæmi um þá stefnu sem félagið hefur mótað um uppbyggingu eignasafnsins,“ segir forstjóri Eikar.
Eik fasteignafélag gekk frá kaupum á Hádegismóum 8 í Árbæ af Brimborg fyrir 2,6 milljarða króna. Samhliða kaupunum var skrifað undir leigusamning við Brimborg til 20 ára, að því er kemur fram í árshlutauppgjöri Eikar.
Um er að ræða 4.000 fermetra sérhæfða fasteign í langtímaleigu til Brimborgar undir starfsemi dótturfélags þess, Veltis. Brimborg fékk byggingarrétt á lóðinni fyrir rúmum áratugi síðan. Skráð byggingarár eignarinnar er 2018.
„Eignin er skýrt dæmi um þá stefnu sem félagið hefur mótað um uppbyggingu eignasafnsins: stórar eignir, öflugir leigutakar og langir leigusamningar,“ segir Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri Eikar.
Hann bendir á að eignin sé með langtíma „triple net“ leigusamning við einn leigutaka.
Eik áætlar að kaupin muni hafa um 195 milljóna króna jákvæð áhrif á EBITDA félagsins á ársgrundvelli.
Í uppgjörinu kemur einnig fram að Eik hafi selt lóð sína að Járnhálsi 4 á öðrum ársfjórðungi. Auk þess hefur fasteignafélagið selt eignir að Suðurlandsbraut 20 og íbúðarhúsalóð við Fossveg 3 á Selfossi.
Samanlagt söluverð af þessum þremur seldum eignum var um 1.270 milljónir króna og nam söluhagnaður 115 milljónum.
Fyrsta raunverulega dæmið um nýja leið
Nýtt dótturfélag Eikar, Vigur Kredit ehf., keypti veðskuldabréf með 2. veðrétti í fasteign í lok júní 2026. Veðsetning, miðað við verðmat félagsins, er undir 75% af virði eignarinnar. Veðskuldabréfið er að fjárhæð 512,5 milljónir króna og er til tveggja ára.
„Þetta er fyrsta raunverulega dæmið um þá fjármögnunarleið sem kynnt var í bréfi til hluthafa í mars, að nýta stöðu félagsins til að fjármagna á síðari veðrétti með veði í atvinnufasteignum — komin til framkvæmda,“ segir Hreiðar Már.
Í umræddu bréfi til hluthafa var fjallað um nýjar áherslur í fjármögnun. Þar sagði Hreiðar Már að félagið sjái tækifæri í breytingum á landslagi fjármögnunar á atvinnuhúsnæði.
„Við sjáum að bankakerfið mun að öllum líkindum þurfa að verðleggja útlán með veði í atvinnuhúsnæði, með veðhlutfall umfram skilgreind viðmið hærra en þegar veðhlutfallið er undir viðmiði. Sylla myndast þá fyrir Eik að lána á síðari veðrétti með veði í atvinnufasteignum. Við myndum í kjarnan vera að lána á áhugaverðum kjörum út á atvinnuhúsnæði sem okkur gæti alveg hugnast að hafa í okkar eigin eignasafni,“ segir í téðu bréfi.
Hagnast um 2,8 milljarða
Eik hagnaðist um 2,8 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi, samanborið við 2,0 milljarða hagnað á sama tímabili árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu nam 2.371 milljónum króna sem samsvarar 26% aukningu frá sama tímabili árið áður.
Rekstrartekjur Eikar jukust um 20% milli ára og námu 3,6 milljörðum króna á ársfjórðungnum.
Í afkomutilkynningu félagsins segir að EBITDA á fyrstu sex mánuðum ársins hafi verið við efri mörk afkomuspár félagsins.
NOI hlutfall (þ.e. rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir) nam 71,8% á fyrstu sex mánuðum ársins 2026 samanborið við 69,6% á sama tímabili árið áður.
Eignir Eikar í lok júní síðastliðnum námu 196 milljörðum króna og eigið fé var um 54,8 milljarðar króna.
Heimild: Vb.is
Efni: Kaupa Hádegismóa 8 af Brimborg fyrir 2.6 milljarða











