Heilbrigðisráðherra kynnir sér stöðu verkefna NLSH
Þann 18.ágúst kom heilbrigðisráðherra, Alma D. Möller, í heimsókn á framkvæmdasvæði NLSH við Hringbraut ásamt ráðuneytisstjóra, Ástu Valdimarsdóttur og öðrum starfsmönnum heilbrigðisráðuneytisins.
Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH, ásamt Finni Árnasyni ,stjórnarformanni NLSH, tóku á móti gestum og kynntu helstu framkvæmdaverkefni félagsins við Hringbraut, á Grensás og á Akureyri.
Einnig var farið yfir stöðu nýrrar matsdeildar bráðamóttöku í Fossvogi. Þá var fjallað um starfsemi félagsins, almennt, en fjölmörg verkefni á sviði hönnunar, tækja- og búnaðarmála svo upplýsingatækniverkefni eru í vinnslu.
Þá er unnið að nokkrum þróunarverkefnum með stýrihóp um skipulag framkvæmda Landspítala og annarra sérhæfðra sjúkrahúsa. Má þar minnast á nýtt Geðhús í Fossvogi, en unnið er að deiliskipulagsgerð með Reykjavíkurborg.
Að kynningu lokinni var farið í vettvangsferð um framkvæmdasvæðið þar Ólafur M. Birgisson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs, sýndi gestum meðferðarkjarnann og rannsóknahúsið.
Veðrið lék við gesti og var heimsóknin vel heppnuð og ánægja meðal starfsmanna ráðuneytisins að sjá framkvæmdirnar við Hringbraut.
Heimild: NLSH ohf.
Efni: Heilbrigðisráðherra kynnir sér stöðu verkefna NLSH












