Home Fréttir Í fréttum Vilja efla innviði í Keflavík og endurnýja ratsjárstöðvar

Vilja efla innviði í Keflavík og endurnýja ratsjárstöðvar

55
0
Vilja efla innviði í Keflavík og endurnýja ratsjárstöðvar
Utanríkisráðherra og Alexus G. Grynkewich, yfirhershöfðingi Atlantshafsbandalagsins. RÚV – Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir

Vilja efla innviði í Keflavík og endurnýja ratsjárstöðvar

Sameiginleg varnaræfing Bandaríkjanna og Íslands um varnir hér og á Norður-Atlantshafinu hófst í gær. Yfirhershöfðingi NATO segist vilja efla innviði á Keflavík og í höfnum.

Æfingin er kölluð Norður-Víkingur og er haldin á Íslandi annað hvert ár að jafnaði.

Æfingin verður tvískipt. Bandaríkin ætla að æfa viðbragð við vaxandi ógn á grundvelli varnarsamningsins og viðbrögð eftir virkjun fimmtu greinar bandalagsins. Samkvæmt henni jafngildir árás á eitt aðildarríki árás á þau öll.

Auk Íslendinga og Bandaríkjamanna taka Norðmenn, Svíar, Danir, Finnar, Þjóðverjar, Frakkar og Kanadamenn þátt í æfingunni.

Alexus G. Grynkewich, yfirhershöfðingi Atlantshafsbandalagsins.
RÚV – Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir

„Þetta er svo mikilvægt, við lifum á víðsjárverðum tímum. Enginn okkar getur gert þetta á eigin spýtur,“ segir Alexus G. Grynkewich, yfirhershöfðingi Atlantshafsbandalagsins.

Grynkewich segir sérstaklega mikilvægt að leggja áherslu á norðurskautið – þar sem andstæðingar NATO geri sig gildandi.

„Í dag eru meint rannsóknarskip Rússlands og Kína í sameiginlegum eftirlitsferðum. Við vitum öll að þau eru ekki hér til að telja lunda,“ segir Alexus G. Grynkewich.

Frá opnunarviðburði Norður-Víkings.
RÚV – Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir

Grynkewich segir að það sé enn til umræðu nákvæmlega hvers konar langtímauppbyggingu eigi að ráðast í hér, eins og hann og forsætisráðherra kynntu eftir fund sinn í vikunni.

„Að halda áfram að fjárfesta hérna, fjárfesta í fjarskiptainnviðum, skynjurum og hafnarinnviðum sem gætu komið bandalaginu að gagni í framtíðinni.“

Hvers konar uppbyggingu erum þið að tala um?

„Efla innviði í Keflavík. Við sjáum líka á næstu árum að það þarf að endurnýja ratsjárstöðvarnar, þessar fjórar stóru mikilvægu sem eru á landinu. Þetta þurfum við að gera í samvinnu við NATÓ og bandamenn okkar. Við erum að efla höfnina í Helguvík,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

„Það sem við erum að gera er mjög verðmætt og í fremstu röð, en það þýðir auknar fjárfestingar í varnar- og öryggismálum,“ bætir hún við.

Heimild: Ruv.is

Efni: Vilja efla innviði í Keflavík og endurnýja ratsjárstöðvar