Home Fréttir Í fréttum Aukinn verkefnaskortur hjá verktökum og hönnuðum

Aukinn verkefnaskortur hjá verktökum og hönnuðum

130
0
Aukinn verkefnaskortur hjá verktökum og hönnuðum
„Það er hérna mikið af tilbúnum, óseldum íbúðum og íbúðum í byggingum sem taka til sín mjög mikinn vaxtakostnað hjá byggingamarkaðnum og ég held að það sé þannig að menn séu misjafnlega staddir í því.“ mbl.is/Anton Brink

Aukinn verkefnaskortur hjá verktökum og hönnuðum

„Það eru hérna margar tilbúnar, óseldar íbúðir og íbúðir í byggingu sem taka til sín mjög mikinn vaxtakostnað hjá byggingamarkaðnum og ég held að það sé þannig að menn séu misjafnlega staddir í því.“

Þetta segir Páll Daníel Sigurðsson, framkvæmdastjóri verktakafyrirtækisins Eyktar, í samtali við mbl.is.

Samtök iðnaðarins (SI) hafa kallað eftir því að Seðlabanki Íslands haldi meginvöxtum óbreyttum í næstu vaxtaákvörðun á miðvikudag, 19. ágúst. Þrátt fyrir að verðbólga sé enn langt yfir markmiði bankans telja samtökin að frekari vaxtahækkanir geti verið of mikið aðhald við núverandi aðstæður.

Þá hefur Sigurður Hannesson, formaður samtakanna, málað upp dökka mynd af stöðu mála í byggingariðnaðinum.

Óskynsamlegt að hækka vexti

Páll segist taka undir með SI um að „óskynsamlegt“ væri að hækka vexti á miðvikudaginn.

„Ég held að það fari mjög hratt niður hjá byggingaverktökum ef það fer ekki eitthvað að rofa til,“ segir Páll.

Mynd: mbl.is/Eggert

Finnur fyrir auknum samdrætti

SI hafa greint frá því að vanskil byggingariðnaðarins hjá stóru viðskiptabönkunum þremur hafi nær þrefaldast á fyrri helmingi ársins og námu 29,7 milljörðum króna um mitt ár, samanborið við 9,3 milljarða um síðustu áramót.

Aðspurður segist Páll ekki hafa þá yfirsýn sem finna má hjá SI. Hann finni þó fyrir auknum samdrætti á markaðnum.

„Ég finn að það eru að hafa samband fleiri og fleiri, bæði hönnuðir og verktakar, sem vantar verkefni. Nú eru verkefni bæði að stöðvast og það eru ekki að byrja ný verkefni hjá þeim sem eru að byggja fyrir eigin reikning og þá leita menn verkefna og ég hef ekki verkefni fyrir hönnuði eða minni verktaka.“

Páll segir þó stöðu Eyktar nokkuð góða, fyrirtækið sé t.a.m. nýbyrjað á tveimur innanhússverkefnum, og sé því staða fyrirtækisins ekki endilega mjög lýsandi fyrir markaðinn.

„Það er bara hversu heppnir menn eru þegar hlutirnir ganga. Við eigum ekkert mikið af óseldum íbúðum en það eru mjög margir sem eiga mikið af óseldu. Helst þessi fyrirtæki sem hafa verið að einbeita sér nánast eingöngu að því að byggja íbúðir.“

Lengri umfjöllun í Morgunblaðinu í dag. 

Heimild: Mbl.is

Efni: Aukinn verkefnaskortur hjá verktökum og hönnuðum