Home Fréttir Í fréttum Glerjun hafin á öllum hliðum Húss heilbrigðisvísindasviðs HÍ

Glerjun hafin á öllum hliðum Húss heilbrigðisvísindasviðs HÍ

110
0
Glerjun hafin á öllum hliðum Húss heilbrigðisvísindasviðs HÍ
Mynd: NLSH.is

Glerjun hafin á öllum hliðum Húss heilbrigðisvísindasviðs HÍ

Framkvæmdum við Hús heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands við Hringbraut miðar vel áfram þrátt fyrir sumarleyfistímann. Stálvirki fimmtu hæðar er nú fullreist og uppsetning glerveggjakerfis er hafin á öllum hliðum byggingarinnar.

Góður gangur hefur verið í framkvæmdunum í sumar og er byggingin nú farin að taka á sig endanlega mynd að utan.

Lokið hefur verið við að reisa stálvirki fimmtu hæðar og er uppsetning samlokueininga á hæðinni langt komin.

Glerveggjakerfi komið vel á veg

Uppsetning glerveggjakerfis byggingarinnar er hafin á öllum hliðum.

Lengst er vinnan komin á suðurhlið, þar sem bæði glerjun og einangrun eru komin vel á veg. Glerjun er jafnframt hafin á austur- og norðurhlið hússins.

Næstu verkþættir snúa að áframhaldandi uppsetningu og frágangi á útveggjum byggingarinnar.

„Framundan er svo áframhaldandi uppsetning og frágangur á glerveggjakerfi ásamt samlokueiningum á fimmtu hæð,“ segir Jóhann Gunnar Ragnarsson, verkefnastjóri hjá NLSH.

Húsið lokast smám saman

Með uppsetningu glerveggjakerfisins og samlokueininganna færist framkvæmdin yfir í mikilvægan áfanga þar sem byggingin lokast smám saman fyrir veðri og vindum.

Það skapar jafnframt betri aðstæður til að halda áfram með innanhússframkvæmdir og tæknilegan frágang hússins eftir því sem útveggjum vindur fram.

Heimild: NLSH.is

Efni: Glerjun hafin á öllum hliðum Húss heilbrigðisvísindasviðs HÍ