Home Fréttir Í fréttum Haustfundur um fasteignamarkaðinn hjá HMS

Haustfundur um fasteignamarkaðinn hjá HMS

72
0
Haustfundur um fasteignamarkaðinn hjá HMS
Mynd: HMS

Haustfundur um fasteignamarkaðinn hjá HMS

HMS boðar til opins fundar um fasteignamarkaðinn í byrjun hausts á fimmtudaginn 27. ágúst kl. 10:00 í Borgartúni 21. Á fundinum verður farið yfir stöðu og horfur á fasteigna- og lánamarkaði, auk þess sem sagt verður frá reynslu Bandaríkjanna af notkun lána með ríkisábyrgð og nýtt úrræði fyrir fasteignakaupendur verður kynnt.

Á fundinum koma fram:

  • Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika
    Staðan á fasteignalánamarkaði
  • Sonia Gilbukh, aðstoðarprófessor við Baruch College
    Áhrif fasteignasala á notkun ríkistryggðra lána í Bandaríkjunum
  • Halldór Sigurðsson, fasteignasali
    Magnkaup – nýtt úrræði fyrir húsnæðiskaupendur

Fundarstjóri: Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur HMS

Heimild: HMS.is

Efni: Haustfundur um fasteignamarkaðinn hjá HMS