Home Fréttir Í fréttum „Áskorun að lækka fjármagnskostnað til að bregðast samdrætti“

„Áskorun að lækka fjármagnskostnað til að bregðast samdrætti“

31
0
„Áskorun að lækka fjármagnskostnað til að bregðast samdrætti“
Fjarskiptamöstur gera okkur kleift að senda og taka á móti fjarskiptamerkjum eins og farsímatengingu. Hér er Stefán við eina slíka sem hann og fleiri vinnufélagar reistu. Ljósmynd/Aðsend

„Áskorun að lækka fjármagnskostnað til að bregðast samdrætti“

Stefán Helgason er húsasmiður búsettur á Selfossi og sinnir alls kyns verkefnum, bæði í grennd við heimabæ sinn og um allt land. Hann stofnaði sitt eigið byggingarfyrirtæki fyrir tuttugu árum. Fyrirtækið tekur að sér fjölbreytt verkefni; allt frá nýbyggingu íbúðarhúsnæðis til byggingar á stóru flugskýli en fyrirtækið hans hefur þó sérhæft sig síðustu ár í að setja upp innviði fyrir fjarskiptabúnað.

Stefán hefur gaman af því að skora á sjálfan sig og hefur alltaf kunnað vel við sig í líkamlegri og lifandi vinnu.

„Ég er fæddur og uppalinn í Vorsabæ í Flóahreppi en bý á Selfossi í dag ásamt eiginkonu minni, Rannveigu Bjarnfinnsdóttur, og tveimur börnum okkar, Sigrúnu og Helga.

Í Vorsabæ bjuggu afi minn og amma og stunduðu þar blandaðan búskap. Þegar ég var barn var pabbi minn vörubílstjóri og við systkinin vorum einnig svo heppin að mamma okkar var heimavinnandi og hún aðstoðaði ömmu og afa í bústörfum.

Ég fékk að taka þátt í bústörfunum og það var mjög góð reynsla út í lífið. Seinna keyptu mamma og pabbi búskapinn af afa og ömmu og hélt ég áfram að aðstoða.

Þegar ég var 16 ára gamall fór ég að vinna við húsasmíði og lærði til sveinsprófs í Fjölbrautaskóla Suðurlands. Ég tók meistaraskólann þar líka. Í dag starfræki ég byggingafyrirtækið Kríutanga ehf. Það var stofnað árið 2006 og fagnar því 20 ára starfsafmæli í ár. Áður en ég stofnaði fyrirtækið hafði ég starfað sem verktaki í sex ár. Kríutangi er alhliða byggingafyrirtæki. Okkar sérsvið er þó uppsteypa og uppsetning á fjarskiptamöstrum. Við sinnum bæði viðhaldi jafnt og nýsmíði og sinnum landbúnaði.‘‘

Hér er verið að byggja veglegt fjós í Seljatungu. Ljósmynd/Aðsend

Brasverkefnin eru skemmtilegust

Hver eru helstu verkefnin sem þið hjá Kríutanga hafið sinnt síðustu ár?

„Meðal verkefna hefur verið að reisa nýtt flugskýli í Reykjavík fyrir Landhelgisgæslu Íslands. Við höfum líka reist yfir 60 fjarskiptamöstur víðs vegar um landið. Einnig byggðum við nýjan vita á Gjögri á Vestfjörðum og svo höfum við byggt sjö fjós og fjöldann allan af íbúðarhúsum.‘‘

Hvað finnst þér skemmtilegast við vinnuna þína?

„Mér finnst gaman að taka að mér verkefni sem krefjast útsjónarsemi, svokölluð brasverkefni og sum af fjarskiptamastraverkefnunum eru þannig. Einnig verð ég að nefna brasverkefni fyrir fólk sem hefur verið að stefna á framkvæmdir í langan tíma og vantar kannski smá aðstoð en þá er mjög gefandi að hjálpa til því fólk verður svo þakklátt.“

Hvort vinnurðu meira fyrir fyrirtæki eða einstaklinga?

„Ég starfa heldur meira fyrir fyrirtæki en einstaklinga.“

Hefur þú tekið eftir einhverjum breytingum í byggingariðnaðinum á síðustu árum?

„Ég hef tekið eftir þróun á byggingarmarkaðinum en hún er þannig að fjármagnskostnaður er að verða stærri hluti af byggingarkostnaði. Það hefur það í för með sér að byggingarhraðinn verður meiri og þá fær byggingin ekki að jafna sig, það er að byggingarefnin fái sinn tíma. Þau þurfa sinn tíma, til dæmis svo að byggingarraki fari úr þeim. Einnig eru verkáætlanir á heildina litið stundum ansi krappar, sem tengist líklega fjármagninu, og það getur stundum gleymst að taka tillit til þess hvort það sé vetur eða sumar.

Svo er meira af erlendu vinnuafli sem hefur takmarkaða reynslu af bæði íslensku veðurfari og íslenskum byggingarhefðum en það tekur auðvitað tíma að koma sér inn í slíkt.“

Stefán Helgason húsasmiður er búsettur á Selfossi og er hér við vinnu í sveitinni á Suðurlandi. Ljósmynd/Aðsend

Örverur þrífast betur í nýbyggingum

Þá er Stefán spurður út í helstu áskoranir sem byggingarfyrirtæki standa frammi fyrir í dag og nefnir þá aftur fjármagnskostnaðinn.

„Það er ákveðin áskorun að lækka fjármagnskostnað til að bregðast við þeim samdrætti sem nýbyggingarmarkaðurinn er að fara í gegnum. Skipulagsyfirvöld þurfa að taka til hjá sér og einfalda ákvörðunarvaldið, fylgja hraðanum í þjóðfélaginu.“

Hefur þú tekið eftir einhverjum breytingum á nýbyggingum miðað við eldri byggingar?

„Í nýbyggingum eru gerðar kröfur um umhverfisvænar vörur en það gerir það að verkum að örverur og svoleiðis gró þrífast betur í byggingum, meðal annars mygla. Efnin sem voru notuð í eldri byggingum voru þéttari og að mörgu leyti betri.

Það er samt mikill kostur við byggingar í dag að þær eru rýmri. Það er betra aðgengi fyrir alla og meðal annars fyrir hreyfihamlaða.“

Hann segir þá að byggingarstíllinn í dag sé að þróast þannig að það sé orðið þéttara á milli húsa.

„Í Reykjavík eru húsin einnig að verða hærri. Svo sé ég hér í kringum Selfoss að fólk sækir í að vera aðeins úti í sveit til að vera meira út af fyrir sig en samt í nálægð við þéttbýlið.“

Ertu með einhver ráð fyrir einstaklinga í framkvæmdum eða fasteignakaupum?

„Þegar farið er í framkvæmdir er undirbúningurinn svo mikilvægur. Það þarf að passa að fá tilskilin leyfi, ef slíkt þarf, og hanna verkið vel. Þegar verið er að velja iðnaðarmann fyrir verkefni þá er gott að skoða fyrri verk hans til að sjá hvort hann henti í það sem á að gera. Ég leiðbeini oft fólki hvernig á að gera hlutina en það ræður á endanum hvernig þessu verður háttað.

Húsnæðiskaup eru stærsta fjárfesting flestra á lífsleiðinni og það er gott að hafa í huga að skoða húsnæðið vel. Skoða hvenær húsið var byggt og í gömlu húsnæði er sniðugt að skoða hvað er búið að endurnýja. Ég mæli með því að fá ástandsskoðun til að átta sig alveg á ástandi eignarinnar.“

Er skortur á iðnaðarmönnum?

„Það er mikil aðsókn í iðnnám í dag og iðnnám er góður grunnur út í lífið. Það getur verið erfitt fyrir nema að komast á samning því það gefst ekki tími í nútímasamfélagi til að kenna og sinna þessum nemum. Á sama tíma er erfitt að fá iðnaðarmenn í vinnu, þá sér í lagi við viðhald.

Síðustu ár hefur verið mikill straumur til Suðvesturlands og það virðist víða vanta iðnaðarmenn til starfa. Hver þróunin verður næstu árin er ekki gott að segja en eitt er víst að það verður alltaf þörf á iðnaðarmönnum til að byggja þetta land.“

Heimild: Mbl.is

Efni: „Áskorun að lækka fjármagnskostnað til að bregðast samdrætti“