Home Fréttir Í fréttum Stefnt að því að nýr leikskóli á Hellu verði fokheldur um áramót

Stefnt að því að nýr leikskóli á Hellu verði fokheldur um áramót

69
0
Stefnt að því að nýr leikskóli á Hellu verði fokheldur um áramót
Mynd: Rangárþing ytra

Stefnt að því að nýr leikskóli á Hellu verði fokheldur um áramót

Framkvæmdir við nýbyggingu leikskóla á Hellu miða áfram og er nú hafin reising eininga í fyrsta hluta hússins. Stefnt er að því að byggingin verði orðin fokheld um næstu áramót.

Þetta kemur fram í fundargerð Framkvæmda- og eignanefndar Rangárþings ytra frá 22. júlí.

Framkvæmdum við sökkla hússins er lokið og næsti áfangi framkvæmda því kominn af stað með reisingu eininga.

Kallað eftir verðum í glugga, hurðir og þakfrágang

Samhliða áframhaldandi uppbyggingu hefur forstöðumanni þjónustumiðstöðvar Rangárþings ytra verið falið að kalla eftir verðum í glugga, hurðir og þakfrágang vegna leikskólans.

Verðin verða lögð fyrir Framkvæmda- og eignanefnd á næsta fundi hennar.

Samkvæmt framkvæmdaáætlun er stefnt að því að húsið verði fokhelt um næstu áramót.

200 milljóna framkvæmdalán vegna leikskólans

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti jafnframt á fundi sínum 12. ágúst að taka allt að 200 milljóna króna lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga til að fjármagna nýframkvæmdir við leikskólann á Hellu.

Lántakan getur verið í formi skammtímaláns sem forvera langtímaláns eða sem langtímalán eftir þeim kjörum sem Lánasjóður sveitarfélaga býður þegar lántakan fer fram.

Heimild: Rangárþing ytra

Efni: Stefnt að því að nýr leikskóli á Hellu verði fokheldur um áramót