Home Fréttir Í fréttum Ný Frístund við Borgarhólsskóla á Húsavík tekin í notkun í haust

Ný Frístund við Borgarhólsskóla á Húsavík tekin í notkun í haust

39
0
Ný Frístund við Borgarhólsskóla á Húsavík tekin í notkun í haust
Lóðarfrágangur á skólalóð í fullum gangi. Myndir: Norðurþing

Ný Frístund við Borgarhólsskóla á Húsavík tekin í notkun í haust

Framkvæmdum við nýtt húsnæði Frístundar við Borgarhólsskóla á Húsavík miðar vel áfram. Stefnt er að því að nýbyggingin verði afhent starfsemi frístundar og félagsmiðstöðvar 1. október næstkomandi.

Nú er unnið að lokafrágangi innanhúss, meðal annars klæðningum, gólfefnum og frágangi við tengingu nýju viðbyggingarinnar við núverandi skólahús.

Jafnframt er frágangur lóðarinnar kominn vel á veg. Þar er meðal annars unnið að uppsetningu steyptra setbekkja, lagningu snjóbræðslu og jarðvinnu vegna nýs leiksvæðis.

Undirbúningur vegna endurnýjunnar leiktækja á skólalóðinni.

Hluti lóðarinnar tilbúinn fyrir lok ágúst

Lítilsháttar tafir hafa orðið á framkvæmdunum en samkvæmt upplýsingum um stöðu verkefnisins eru þær óverulegar miðað við umfang þess.

Markmið verktaka er að ljúka þeim hluta lóðarinnar sem tryggir aðgengi að skólahúsinu austan megin fyrir 29. ágúst.

Gangi áætlanir eftir verður síðan nýbyggingin í heild afhent starfsemi frístundar og félagsmiðstöðvar 1. október 2026.

Tengigangur yfir í Borgarhólsskóla

Bætt aðstaða fyrir frístunda- og félagsstarf

Með nýbyggingunni verður aðstaða fyrir félags- og frístundastarf barna og ungmenna á Húsavík aukin og endurbætt.

Aukið rými og ný aðstaða eiga að skapa betri skilyrði fyrir fjölbreytt frístunda- og félagsstarf og samveru barna og ungmenna.

Framkvæmdin er hluti af uppbyggingu skóla- og frístundaaðstöðu við Borgarhólsskóla og verður næsti stóri áfangi verkefnisins afhending húsnæðisins í byrjun október.

Aðstaða félagsmiðstöðvarinnar Túns

Heimild: Norðurþing

Efni: Ný Frístund við Borgarhólsskóla á Húsavík tekin í notkun í haust