Enn tvö ár í að brúin yfir Ölfusá verði tekin í notkun
Íslendingar í ferðahug máttu þola langa bið við Ölfusárbrúna gömlu um verslunarmannahelgina.
Bæjarstjóri Árborgar hafði varað fólk sem kom af höfuðborgarsvæðinu við og hvatt það til að keyra frekar Þrengslin.
Ef allt fer að óskum munu ökumenn ekki ergja sig á bílaröðinni við innreiðina á Selfoss eftir verslunarmannahelgi 2028. Áætluð verklok framkvæmda við nýja Ölfusárbrú eru um haustið sama ár.
Þangað til bíður landinn við gömlu brúna með langlundargeðið að vopni.
Heimild: Mbl.is












