Home Fréttir Í fréttum Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík

Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík

173
0
Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík
Skjáskot/Knight Frank

Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík

Jónas Hagan, fjárfestir og einn af stofnendum samtakanna Já til að sjá, sem berjast fyrir aðildarviðræðum Íslands að Evrópusambandinu, hefur sett íbúð sína við Bryggjugötu í Reykjavík á sölu. Verðmiðinn er 10 milljónir dollara.

Auglýst í dollurum

Athygli vekur að íbúðin er ekki auglýst til sölu í íslenskum krónum heldur lögeyri Bandaríkjanna og er uppsett verð í íslenskum krónum ríflega 1,2 milljarðar króna.

Íbúðin er auk þess ekki auglýst til sölu á íslenskum fasteignasíðum heldur hjá Knight Frank sem er umsvifamikil bresk fasteignasala sem starfar í mörgum löndum. Er það útibú sölunnar á Jersey sem auglýsir íbúðina til sölu.

Jónas Hagan hefur rætt um kosti aðildar að ESB á undanförnum vikum. mbl.is/María Matthíasdóttir

Meira en tvöfaldast í verði

Athygli vakti þegar Jónas festi kaup á íbúðinni árið 2022 fyrir um hálfan milljarð króna en hún var þá tilbúin undir innréttingar.

Íbúðin við Austurhöfn er meðal dýrustu íbúðareininga á landinu en henni hefur meðal annars brugðið fyrir í myndböndum sem Já til að sjá hefur unnið og birt í þeirri viðleitni að sannfæra Íslendinga um að endurvekja aðildarviðræður við Evrópusambandið.

Hér að neðan má sjá svipmyndir úr íbúðinni við sundin blá.

Skjáskot/Knight Frank
Skjáskot/Knight Frank
Skjáskot/Knight Frank

Heimild: Mbl.is

Efni: Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík