Home Fréttir Í fréttum Byrja að leggja vatnslögnina í kvöld

Byrja að leggja vatnslögnina í kvöld

100
0
Byrja að leggja vatnslögnina í kvöld
Útlagningarskip kom til Vestmannaeyja í morgun. RÚV – Ólöf Ragnarsdóttir

Byrja að leggja vatnslögnina í kvöld

Vatnslögn verður lögð til Vestmannaeyja á næstu dögum. Bæjarstjórinn segir það mikinn létti fyrir samfélagið að lögnin komist í gagnið.

Byrjað verður að leggja vatnslögn frá Landeyjahöfn að Skansfjöru í Vestmannaeyjum í kvöld.

„Hún var sótt í síðustu viku til Danmerkur þar sem hún var framleidd. Nú eru þeir komnir með útlagningarskipið. Það kom hingað í morgun,“ segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, sem vonast til að lögnin verði tilbúin um helgina.

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri.
Víðir Hólm

Lögnin er almannavarnalögn og verður því ekki nýtt til að dreifa vatni í Vestmannaeyjabæ. „En hún er sannarlega til staðar ef eitthvað kemur upp á eins og gerðist fyrir tæpum þremur árum,“ segir Íris.

Neysluvatnslögnin til Vestmannaeyja skemmdist eftir að akkeri togarans Hugins VE 55 hafnaði á henni í nóvember 2023. Bærinn höfðaði skaðabótamál gegn Hugin, Vinnslustöðinni og VÍS vegna skemmdanna og krafðist um tveggja milljarða króna. Ekki var fallist á kröfu bæjarins sem hefur áfrýjað málinu til Landsréttar.

Íris segir mikinn létti fyrir samfélagið að lögnin komist í gagnið. „Þetta verður mikill gleðidagur þegar það verður búið að tengja hana.“

Heimild: Ruv.is