Home Fréttir Í fréttum Virðis­rýrnun Arion banka nær fimm­faldast

Virðis­rýrnun Arion banka nær fimm­faldast

78
0
Virðis­rýrnun Arion banka nær fimm­faldast
Ljósmynd: Aðsend mynd

Virðis­rýrnun Arion banka nær fimm­faldast

Stærstur hluti virðis­rýrnunarinnar tengdist fyrir­tækjum.

rein virðis­rýrnun fjár­eigna hjá Arion banka nam 1,07 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins og var nær fimm­falt meiri en á sama tíma­bili í fyrra.

Virðis­rýrnunin nam 231 milljón króna á fyrri helmingi síðasta árs. Aukningin milli ára nemur því 839 milljónum króna.

Virðis­rýrnun vegna fyrir­tækja nam 782 milljónum króna, saman­borið við 549 milljónir á sama tíma­bili í fyrra. Vegna ein­stak­linga voru 288 milljónir færðar til gjalda, en árið áður höfðu 318 milljónir verið bak­færðar til tekna.

Á öðrum árs­fjórðungi einum nam virðis­rýrnunin 679 milljónum króna. Á sama fjórðungi í fyrra var 147 milljóna króna bak­færsla hins vegar færð til tekna. Um­skiptin milli fjórðunga nema því 826 milljónum króna.

Aukning virðis­rýrnunar kemur sam­hliða miklum vexti lána­safnsins. Útlán Arion banka jukust um 89 milljarða króna, eða tæp 7%, frá áramótum.

Útlán til fyrir­tækja jukust um tæp 10% en lán til ein­stak­linga um 3,5%.

Hlut­fall lána á þriðja stigi, þar sem láns­hæfi hefur laskast, hækkaði þó aðeins úr 2,4% í 2,5% frá áramótum.

Virðis­rýrnunin bendir því ekki ein og sér til al­mennrar og mikillar versnunar lána­safnsins, en hún vegur mun þyngra í upp­gjöri bankans en á sama tíma í fyrra.

Heimild: Vs.is

Efni: Virðis­rýrnun Arion banka nær fimm­faldast