Home Fréttir Í fréttum Dýr þétting skýri hæga sölu íbúða

Dýr þétting skýri hæga sölu íbúða

68
0
Dýr þétting skýri hæga sölu íbúða
Uppbygging á óbrotnu landi er ódýrari valkostur. mbl.is/Sigurður Bogi

Dýr þétting skýri hæga sölu íbúða

Svanur Karl Grjetarsson, forstjóri byggingafyrirtækisins MótX, segir ládeyðu á fasteignamarkaði fyrst og fremst skýrast af háu verði nýrra íbúða á þéttingarreitum. Vegna áherslu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu á slíka uppbyggingu séu þær íbúðir hlutfallslega hátt hlutfall nýrra íbúða á markaðnum.

Tilefnið er ný mánaðarskýrsla Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, HMS, en þar kemur fram að þinglýstir kaupsamningar fyrir íbúðarhúsnæði voru 782 í maí síðastliðnum og hafa ekki færri kaupsamningar verið gerðir í þeim mánuði undanfarin tíu ár, ef frá er talið árið 2023 þegar 731 kaupsamningi var þinglýst.

Heimild: Mbl.is