Virðisrýrnun lána í byggingarstarfsemi tvöfaldast
Bankastjóri Landsbankans segir blikur á lofti á byggingarmarkaði. Lán í vanskilum jukust um 175% á sex mánuðum.
Erfið staða á byggingarmarkaði er farin að birtast í aukinni virðisrýrnun útlána hjá Landsbankanum, sem er einn stærsti lánveitandi greinarinnar.
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir blikur á lofti í byggingarstarfsemi og telur erfitt að sjá að ástandið batni að ráði meðan vaxtastig helst hátt.
„Landsbankinn er stór lánveitandi á byggingarmarkaði og þar eru blikur á lofti sem endurspeglast t.d. í aukinni virðisrýrnun í uppgjöri bankans. Það er erfitt að sjá að ástandið geti lagast fyrr en vextir lækka,“ segir Lilja í tilefni af hálfsársuppgjöri bankans.
Hún segir jafnframt að til lengri tíma þurfi að huga að því að draga úr flóknum kvöðum og álögum sem auki kostnað við byggingu nýrra fasteigna.
Meira en tvöföldun á sex mánuðum
Virðisrýrnun vegna lána til fyrirtækja í byggingarstarfsemi nam rúmum þremur milljörðum króna í lok júní, samanborið við 1,5 milljarða um áramót.
Hún hefur því aukist um tæplega 1,6 milljarða króna og meira en tvöfaldast á hálfu ári. Virðisrýrnunin endurspeglar mat bankans á væntu útlánatapi en felur ekki í sér að samsvarandi endanlegt tap hafi þegar orðið.
Af 252,8 milljarða króna lánasafni greinarinnar voru 220,5 milljarðar í áhættustigi 1 í lok júní. Útlán í áhættustigi 2 námu 22,9 milljörðum og útlán í áhættustigi 3 tæpum níu milljörðum króna.
Lán í áhættustigi 3 höfðu aukist úr aðeins 752 milljónum króna um áramót í tæpa níu milljarða í lok júní. Þar er um að ræða útlán þar sem orðið hefur greiðslufall eða önnur merki um verulega skerðingu á útlánagæðum.
Útlán í áhættustigi 2 jukust á sama tíma úr 18,5 milljörðum í 22,9 milljarða króna. Í þeim flokki eru lán þar sem útlánaáhætta hefur aukist verulega frá því að lánið var upphaflega veitt, þótt lántakandinn þurfi ekki að vera kominn í vanskil.
Lán til greinarinnar komin í 250 milljarða
Bókfært brúttóvirði útlána Landsbankans til fyrirtækja í byggingarstarfsemi nam 252,8 milljörðum króna í lok júní, samanborið við 194,8 milljarða um áramót.
Aukningin nam því um 58 milljörðum króna, eða tæplega 30%.
Stór hluti aukningarinnar skýrist þó af breyttri flokkun. Útlán að fjárhæð 31 milljarður króna, sem áður voru flokkuð sem lán til fasteignafélaga, voru á tímabilinu færð undir byggingarstarfsemi. Endurflokkunin hafði því engin áhrif á heildarútlán bankans.
Að endurflokkuninni frátalinni jókst staðan um 27 milljarða króna. Ný útlán námu um 13 milljörðum og nýting áður samþykktra lánalína um 22 milljörðum, en um níu milljarðar voru greiddir upp.
Útlán til fyrirtækja í heild jukust um 3,8% á fyrri helmingi ársins og segir Landsbankinn vöxtinn einkum hafa verið í lánum til byggingarstarfsemi.
Heimild: Vb.is
Efni: Virðisrýrnun lána í byggingarstarfsemi tvöfaldast












