Home Fréttir Í fréttum Kaupsamningafjöldi sá lægsti í 10 ár

Kaupsamningafjöldi sá lægsti í 10 ár

38
0
Kaupsamningafjöldi sá lægsti í 10 ár
Kólnun virðist vera á fasteignamarkaði. Morgunblaðið/Ómar

Kaupsamningafjöldi sá lægsti í 10 ár

Þinglýstir kaupsamningar um íbúðarhúsnæði voru 782 í maí síðastliðnum. Það eru færri kaupsamningar en í sama mánuði undanfarin tíu ár, ef frá er talið árið 2023 þegar 731 kaupsamningi var þinglýst.

Með öðrum orðum, þá er fasteignamarkaðurinn áfram afar rólegur en kaupsamningar í maí voru færri en undanfarin ár og framboð íbúða til sölu hélt áfram að aukast á milli mánaða.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS).

Þar kemur fram að kaup á íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu hafi beinst í auknum mæli að ódýrari íbúðum á undanförnum fimm árum, samhliða versnandi íbúðalánakjörum og hertum lánþegaskilyrðum.

Tæplega sjö mánuði tæki að selja allt núverandi framboð af íbúðum á sölu á höfuðborgarsvæðinu ef miðað er við virkni síðustu þriggja mánaða og hefur sá tími lengst töluvert það sem af er ári. Fasteignasalar telja þó að jafnaði fleiri skoða eignir í fyrstu viku sölutíma í byrjun júlí samanborið við í byrjun júní.

Ungmennum í foreldrahúsum fækkað

Samkvæmt skýrslu HMS hefur leigumarkaðurinn stækkað lítillega undanfarið samkvæmt nýrri búsetumælingu HMS, en hlutfall einstaklinga á leigumarkaði mældist 29% í vor samanborið við 28% síðastliðið haust. Niðurstöðurnar benda jafnframt til þess að ungmennum í foreldrahúsum fækki og að ungmennum á leigumarkaði fjölgi.

Samkvæmt mælingu HMS búa því um 37% einstaklinga á aldrinum 18-24 ára í foreldrahúsum samanborið við um 47% í fyrra. Á sama tíma hefur hlutfall einstaklinga á leigumarkaði hækkað úr 34% í 45%.

Flest gögn benda til þess að hlutfall ungs fólks í foreldrahúsum hér á landi hafi að jafnaði verið á pari við það sem þekkist að meðaltali í löndum innan Evrópusambandsins. Hlutfallið hefur þó verið talsvert hærra hér á landi en á hinum Norðurlöndunum þar sem það mælist að jafnaði lægst í alþjóðlegum samanburði.

Óvissa á lánamarkaði

Þá heldur lánamarkaðurinn áfram að einkennast af óverðtryggðri íbúðalántöku heimilanna hjá bönkunum en verðtryggðri lántöku hjá lífeyrissjóðunum.

Undanfarin misseri hafa heimilin valið að festa vexti á íbúðalánum sínum í auknum mæli, en í apríl voru nær 95% allra nýrra fasteignalána á föstum vöxtum.

Eftir dóm Hæstaréttar gerðu flestar lánastofnanir tímabundið hlé á afgreiðslu íbúðalána af ýmsum gerðum, sér í lagi lána með breytilegum vöxtum. Á fyrsta fjórðungi þessa árs var lántaka á breytilegum vöxtum enn töluvert minni, en hlutdeild þeirra nam 8% af öllum nýjum lánum samanborið við 46% á sama tíma í fyrra, áður en vaxtadómarnir féllu.

Fram undir lok árs 2025 voru verðtryggð lán með breytilegum vöxtum stærsti einstaki lánaflokkurinn, en eftir breytingar á íbúðalánamarkaði í kjölfar vaxtadómanna hefur vægi þeirra minnkað verulega. Í apríl 2026 voru slík lán einungis um 0,8% af nýjum fasteignalánum, samanborið við rúmlega helming allra nýrra lána árið 2024.

Samdráttur, atvinnuleysi og gjaldþrot á byggingarmarkaði

Þá er byggingarmarkaðurinn farinn að sýna merki hóflegs samdráttar með færri nýskráningum fyrirtækja, fleiri gjaldþrotum og auknu atvinnuleysi.

Áætla má að atvinnuleysi í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð sé um 6% á meðan það mælist um 4% í hagkerfinu í heild.

Atvinnuleysi í byggingariðnaði hefur einnig aukist hraðar en annars staðar í hagkerfinu á undanförnum árum en er þó ekki nálægt því að vera jafn mikið og það var á tímum heimsfaraldursins á árunum 2020 til 2021 eða í kjölfar fjármálahrunsins árin 2009 til 2012.

Útistandandi lán banka til byggingarstarfsemi og mannvirkjagerðar námu tæplega 438 milljörðum króna undir lok maímánaðar og hafa aukist um tæplega 108 milljarða króna á milli aprílmánaða 2025 og 2026.

Heimild: Mbl.is

Efni: Kaupsamningafjöldi sá lægsti í 10 ár