Home Fréttir Í fréttum Hætta við sameiginlega opnunarhátíð nýrrar brúar í skugga tollahótana Trumps

Hætta við sameiginlega opnunarhátíð nýrrar brúar í skugga tollahótana Trumps

72
0
Hætta við sameiginlega opnunarhátíð nýrrar brúar í skugga tollahótana Trumps
Brúin liggur á milli Windsor í Ontario-fylki og Detroit í Michigan-ríki. AP – Paul Sancya

Hætta við sameiginlega opnunarhátíð nýrrar brúar í skugga tollahótana Trumps

Brúin kostar 4,4 milljarða Bandaríkjadala og hefur verið í smíðum frá 2018. Kanada fjármagnaði brúarsmíðina en innheimtir í staðinn vegtolla. Bandarísk stjórnvöld hafa viljað breyta samkomulagi ríkjanna og vilja hlutdeild í tekjunum.

Kanada hefur dregið sig út úr sameiginlegri opnunarhátíð fyrir opnun Gordie Howe-brúarinnar sem tengir Ontario-fylki í Kanada við Michigan-ríki í Bandaríkjunum.

Þessi ákvörðun er tekin í framhaldi af tilkynningum Donalds Trumps Bandaríkjaforseta fyrr í vikunni um aukna tolla á innflutning frá Kanada.

Kanadísk stjórnvöld hafa ákveðið að í staðinn verði Kanadamenn með sína eigin athöfn á morgun, þremur dögum áður en áformað er að hleypa umferð á brúna. Óvíst er hvort Bandaríkin haldi sína eigin athöfn.

Nefnd eftir einum besta hokkíleikmanni sögunnar

Trump hótaði að koma í veg fyrir opnun brúarinnar fyrr á árinu. Mark Carney forsætisráðherra Kanada tilkynnti í júní að brúin yrði opnuð en því var frestað um óákveðinn tíma vegna tæknilegra örðugleika í Bandaríkjunum.

Opnun brúarinnar var endanlega staðfest fyrr í mánuðinum. Hún er nefnd eftir Kanadamanninum Gordie Howe sem er af mörgum talinn einn besti hokkíleikmaður sögunnar. Hann lék stóran hluta ferils síns fyrir Detroit Red Wings í NHL-deildinni.

Kanada fjármagnaði smíðina að fullu

Brúin hefur verið í smíðum síðan 2018 og framkvæmdin kostar nærri 4,4 milljarða Bandaríkjadala, eða sem samsvarar um 550 milljörðum króna. Kanada fjármagnaði framkvæmdina að fullu í samræmi við samkomulag ríkjanna sem kveður á um að ríkið fái kostnaðinn endurgreiddan með vegtollum.

Stjórn Trumps hefur sóst eftir því að gera breytingar á samkomulaginu. Í febrúar fór Trump fram á það að Kanada léti Bandaríkjunum eftir helmingseignarhlut í brúnni.

Heimild: Ruv.is

Efni: Hætta við sameiginlega opnunarhátíð nýrrar brúar í skugga tollahótana Trumps