Vinna að vegbótum við Landmannalaugar
Vegagerðin vinnur nú að vegbótum í Landmannalaugum og hefur meðal annars lagt rör yfir Laugalæk, þannig að ökumenn á leið inn á svæðið þurfa ekki lengur að aka yfir lækinn á vaði.
Valdimar Kristjánsson, svæðissérfræðingur á landvörslusviði Náttúruverndarstofnunar, segir vaðið yfir Laugalæk lengi hafa verið til vandræða.
„Það fara alltaf þó nokkrir bílar þarna á kaf á hverju ári,“ segir Valdimar í samtali við mbl.is.
Áfram þarf að aka yfir Námskvísl
Hann segir malarbakka vera sitt hvorum megin við vaðið og að möl úr botninum sópist sífellt upp á bakkana. Vaðið aflagist því og verði sífellt dýpra.

Enn er þó ekki búið að brúa allar leiðir inn á svæðið, því áfram þarf að aka á vaði yfir Námskvísl, sem er skammt frá.
„Nú þarf fólk ekki að fara yfir tvö vöð, heldur bara eitt og það eru kannski minni líkur á að fólk drekki bílum í Námskvíslinni,“ segir Valdimar. Aðgengið sé því skárra en smærri bílar komist þó ólíklega alla leið að Landmannalaugum.
Valdimar segir að kallað hafi verið eftir úrbótum á vaðinu. Óhöpp á vöðum geti reynst ferðamönnum dýrkeypt, enda nái tryggingar bílaleigubíla almennt ekki yfir tjón sem verður þegar ekið er yfir ár og vöð, og kostnaðurinn falli því á ferðamennina sjálfa.
Viðbrögðin góð sem af er
Viðbrögðin við framkvæmdinni hafa verið góð að sögn Valdimars.
„Við höfum ekki fengið nema jákvæð viðbrögð frá ferðamönnum sem ég hef hitt þarna,“ segir hann.
Hann tekur þó fram að töluverður fjöldi kjósi áfram að leggja bílum sínum hinum megin við vöðin og ganga síðasta spölinn, enda sé enn eitt vað á leiðinni.
Heimild: Mbl.is