Home Fréttir Í fréttum N1 áformar miklar breytingar á Egilsstöðum

N1 áformar miklar breytingar á Egilsstöðum

118
0
N1 áformar miklar breytingar á Egilsstöðum
Séð yfir svæði N1 á Egilsstöðum í byrjun júlí. Mynd: GG

N1 áformar miklar breytingar á Egilsstöðum

N1 hefur boðað framkvæmdir við stöð sína á Egilsstöðum á næstunni. Gert er ráð fyrir að söluskáli félagsins verði endurnýjaður nánast í heild auk þess sem frekari breytingar eru fyrirhugaðar á lóð félagsins.

Þetta kom fram í máli Magnúsar Hafliðasonar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, á fundi nýverið um skipulag miðbæjar Egilsstaða.

Strax í byrjun sumars fékk svæðið andlitslyftingu með nýrri málningu. Á fundinum sagði Magnús að fram undan væri að endurnýja söluskálann sjálfan. Á þessu ári er áætlað að hefja heildarendurnýjun á stöðinni að innan.

Dælurnar þarf að endurnýja

Fleira er á döfinni. Endurnýja þarf eldsneytisbúnaðinn, sem er töluverð framkvæmd. Þá er orðin þörf á að aðgreina betur eldsneytisafgreiðslu fyrir stórnotendur og smærri. Magnús sagði slíkt auka umferðaröryggi og bæta flæði um svæðið, meðal annars vegna aukinnar rútuumferðar. Áætlað er að breyting á eldsneytisbúnaðinum taki 2-2,5 ár.

Fyrirtækið vill fjölga rafhleðslustöðvum, bæði á eigin vegum og frá Tesla. Einnig þarf afkastameiri stöðvar og pláss til að taka á móti stærri rafbílum.

Magnús Hafliðason, framkvæmdastjóri N1. Mynd: GG

Þvottaplönin úrelt

Magnús kallaði þvottaplönin barn síns tíma, meðal annars því þau taki ekki rétt við hreinsiefnum. Félagið hefur hug á að koma upp þvottabásum fremur en sjálfvirkri þvottastöð.

Magnús sýndi á fundinum hugmyndir um að eldsneytisdælur fyrir stærri bíla færist syðst, eða innst á lóðina og að þar byggist þvottabásarnir líka upp. Hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla komi síðan upp yst á svæðinu við Fagradalsbraut.

Fyrirtæki sem skiptir máli fyrir þjónustuna á Egilsstöðum

Hann sagði ávinning framkvæmdanna vera hærra þjónustustig, aukið umferðaröryggi, nútímalegri ásýnd og stuðningur við orkuskipti. Hann sagði helsta gallann við rekstur stöðvarinnar vera miklar sveiflur, einkum þegar fólk flykktist á svæðið á sólríkum sumardögum.

Á fundinum var töluvert gagnrýnt að N1 og Nettó stæðu í vegi fyrir framþróun miðbæjarskipulagsins með mikilli áherslu á að halda í sem flest bílastæði. Magnús svaraði að N1 sinnti mikilvægu þjónustuhlutverki á Egilsstöðum, hvort sem fólk áttaði sig á því eða ekki. „Við léttum enn einn daginn fyrir Egilsstaði með nútímalegri, öruggri og fjölbreyttri þjónustu.“

Sólveig Jóhannesdóttir frá Klasa. Mynd: GG

Mannlíf til staðar í miðbænum

Sólveig Jóhannesdóttir, frá þróunarfélaginu Klasa, sagði í sínu erindi að N1 og Nettó mynduðu ákveðna kjölfestu í núverandi miðbæ sem hægt væri að byggja ofan á. Á þessu svæði komi mikið af fólki. Einföld aðgerð til að byrja á væri síðan að merkja gönguleiðir út frá svæðunum.

Sólveig hefur í gegnum tíðina komið að stórum fasteignaþróunarverkefnum, nú síðast Borgarhöfða, nýju hverfi í Reykjavík þar sem þess er vænst að 20.000 manns búi í framtíðinni en þar áður meðal annars Garðatorgi í Garðabæ.

Mikilvægt að hafa trú á stefnunni

Hún sagði mikilvægt að fólk gerði sér grein fyrir að slík verkefni tækju tíma og mikilvægt væri að fylgja stefnunni alla tíð. Við uppbyggingu Garðatorgs hefði til dæmis tekið tíma að fá fyrirtæki sem trú væri á að hentuðu þar inn. Hún nefndi torgið líka sem dæmi um að mikilvægt væri að missa ekki móðinn þótt á móti blési því það hefði lifað af hrunið.

Hún sagði forsendu þessa vera að byrja vel með greiningum á hvað þyrfti til að styrkja svæðið, reyna að sjá fyrir þróun íbúa, ferðafólks og rekstrar til að meta hvað þyrfti til, bæði í íbúðum og rekstri.

Heimild: Austurfrett.is

Efni: N1 áformar miklar breytingar á Egilsstöðum