Home Fréttir Í fréttum Málarar með tárin í augunum í vætunni

Málarar með tárin í augunum í vætunni

103
0
Málarar með tárin í augunum í vætunni
Kristján Aðalsteinsson er formaður félags málarameistara, sumarið hefur ekki verið þeim gjöfult. mbl.is/Jakob Fannar

Málarar með tárin í augunum í vætunni

Júlímánuður hefur til þessa verið sá úrkomusamasti í sögu mælinga í Reykjavík og hefur það haft töluverð áhrif á störf málarameistara, að sögn formanns félags þeirra.

„Málarameistarar eru með tárin í augunum bara. Þetta er allavega alveg hundleiðinlegt,“ segir Kristján Aðalsteinsson formaður Málarameistarafélagsins, spurður hvort úrkoman hafi haft áhrif á starfsstéttina þetta sumarið.

Kristján segir þetta þó auðvitað ekki vera fyrsta sumarið sem úrkoman hafi spillt fyrir málurum og málarameisturum.

„Ég var í viðtali í fréttatíma sjónvarpsins fyrir tveimur árum. Það var einmitt búið að vera mikið rigningarsumar, eitt það versta í langan tíma. Það var einmitt heiðskírt í viðtalinu og talað um að menn ætluðu að nota hverja einustu mínútu núna en akkúrat eftir það viðtal rigndi allt niður.“

Heimild: Mbl.is