Vindmyllurnar umdeildar á Fljótsdalshéraði
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs leggst gegn vindmyllum við Lagarfossvirkjun. Sveitarstjóri segir áformin umdeild í Múlaþingi.
Orkusalan vill reisa tvær 160 metra háar vindmyllur við Lagarfossvirkjun á Fljótsdalshéraði. „Það er ljóst að þessi framkvæmd er umdeild hér,“ segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri í Múlaþingi.
Umsagnarferli fyrir umhverfismatsskýrslu lauk í skipulagsgátt stjórnvalda á föstudag.
„Okkur finnst ekki hafa verið haft nægilegt samráð við íbúa og hagsmunaaðila. Það eru þessir samfélagslegu þættir sem okkur finnst ekki hafa verið greindir nægilega vel í ljósi þess hvar staðsetningin á þessum vindmyllum yrði,“ segir Dagmar.
Meirihluti sveitarstjórnar skilaði umsögn um málið. Þar kemur fram að heimastjórn Fjarðabyggðar leggist gegn vindmyllunum. Hún fer með hlutverk náttúruverndarnefndar.

Aðsend mynd – Austurbrú/Ester Ösp Gunnarsdóttir
Heimastjórnin ályktar að áformin hefðu mikil neikvæð sjónræn áhrif víða á Fljótsdalshéraði. Þá yrði umtalsverð hljóðmengun í grennd við vindmyllurnar.
Dagmar bendir á að einnig megi skoða betur hvort vegir séu til þess fallnir að flytja vindmyllur frá Reyðarfirði.
Mikilvægt svæði fyrir fuglalíf
Náttúruverndarstofnun segir í sinni umsögn að sum umhverfisáhrif séu óviss eða vanmetin og þau þurfi að greina betur. Þar er bent á að þetta sé mikilvægt svæði fyrir fuglalíf þar sem varpfuglar með mikið verndargildi, svo sem lómur, flórgoði og kjói, haldi til.
Áhrif á fuglana, verði vindmyllurnar reistar, séu óljós. Til dæmis hafi áhrif hljóðmengunar ekki verið metin út frá þeim.
VG og óháð leggjast gegn vindmyllunum í sinni umsögn í samráðsgátt. Listinn segir að samráð hafi verið ófullnægjandi og veruleg óvissa um áhrif framkvæmdarinnar á fuglalíf, landslag og náttúruupplifun.
Í framhaldinu tekur Húsnæðis-, mannvirkja-, og skipulagsstofnun málið til umfjöllunar og skilar áliti um umhverfismatsskýrsluna.
„Við þurfum aðeins að bíða og sjá hvernig niðurstaðan verður þar. Næstu skref verða síðan tekin í framhaldinu,“ segir Dagmar Ýr.
Heimild: Ruv.is
Efni: Vindmyllurnar umdeildar á Fljótsdalshéraði












