9 látnir og 15 fastir eftir að göng hrundu
Að minnsta kosti níu hafa látist og 15 aðrir eru enn fastir eftir að göng hrundu við vatnsaflsvirkjun í byggingu í afskekktum norðausturhluta Indlands, að sögn yfirvalda í dag.
Atvikið átti sér stað í gær í Himalajafylkinu Sikkim, þar sem verkamenn voru að byggja göng fyrir vatnsaflsvirkjun ríkisins við Teesta-ána.
„Við áætlum að um 25–27 manns hafi lokast inni. Níu lík hafa fundist,“ sagði Rajiv Roka, forstjóri hamfaravarnastofnunar Sikkim-fylkis, í samtali við AFP-fréttaveituna.
Hrunið líklega af völdum sprengingar
Hrunið var líklega af völdum sprengingar, en orsök hennar hefur ekki enn verið staðfest.
Monsúnrigningar hafa gengið yfir svæðið undanfarna daga. Roka sagði yfirvöld „ekki viss um hvað olli sprengingunni þar sem hún varð djúpt inni í göngunum,“ og bætti við að hún hafi „líklegast verið af náttúrulegum orsökum“.
Eitrað metangas sem lekur úr neðanjarðarbergmyndunum hindrar björgunaraðgerðir, að sögn yfirvalda, og leyfir aðeins teymum með súrefnisbúnað að fara inn.
„Umfangsmiklar björgunaraðgerðir eru í gangi en vandamálið er að það er mikið gas þarna,“ sagði Roka.
Sérhæfðu teymi sem er þjálfað í námuslysum hefur verið flogið á staðinn til að aðstoða björgunarmenn, bætti hann við.
Heimild: Mbl.is












