Home Fréttir Í fréttum 22.09.2026 Vegagerðin býður út nýjan Búðafossveg og 204 metra brú yfir Þjórsá

22.09.2026 Vegagerðin býður út nýjan Búðafossveg og 204 metra brú yfir Þjórsá

316
0
Vegagerðin býður út nýjan Búðafossveg og 204 metra brú yfir Þjórsá
Ný Þjórsárbrú er fyrirhuguð um einn kílómetra ofan við fossinn Búða og eyjuna Árnes. Teikning/Vegagerðin

Vegagerðin býður út nýjan Búðafossveg og 204 metra brú yfir Þjórsá

Vegagerðin hefur auglýst útboð á umfangsmikilli framkvæmd við Búðafossveg (23) þar sem byggður verður nýr 7,4 kílómetra vegkafli milli Þjórsárdalsvegar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Landvegar í Rangárþingi ytra.

Eitt stærsta mannvirki verkefnisins er 204 metra löng brú yfir Þjórsá, sem verður reist norðaustan við Búðafoss. Framkvæmdin er mikilvægur hluti af uppbyggingu samgöngukerfisins á Suðurlandi og mun bæta tengingar milli Þjórsárdals, Landssveitar og nærliggjandi svæða.

Ný brú og hringtorg

Verkið felur meðal annars í sér:

  • Nýbyggingu 7,4 km af Búðafossvegi.
  • Gerð malbikaðs hringtorgs á gatnamótum Þjórsárdalsvegar og Búðafossvegar.
  • Byggingu 204 metra brúar yfir Þjórsá.
  • Gerð um 2,6 km tengivega og heimreiða á fjórum stöðum.
  • Uppsetningu tveggja 3,6 metra reiðganga úr stálplötum.
  • Lagningu ræsa og búfjárganga.
  • Uppsetningu girðinga, ristarhliða, ljósastaura og annars vegbúnaðar.

Vegna verndar fiskgengdar í Þjórsá verða sérstakar takmarkanir á framkvæmdum í farvegi árinnar sem hafa áhrif á byggingu varnargarða við brúna.

Umfangsmikil vega- og brúargerð

Helstu magntölur í vegagerð

  • Ræsalagnir: 370 m
  • Vegrið: 705 m
  • Fyllingar, styrktarlög, burðarlög og klæðing samkvæmt útboðsgögnum.

Helstu magntölur í brúargerð

  • Vegrið á brú: 412 m
  • Boraðir stálstaurar: 940 m
  • Mótafletir: 169 m²
  • Steypa: 155 m³
  • Forsteyptar einingar: 173 stk.
  • Stálvirki: 321 tonn
  • Ryðvörn: 727 m²

Tilboð í september

Útboðsgögn verða aðgengileg í rafræna útboðskerfinu TendSign frá 17. júlí 2026.

  • Skilafrestur tilboða: 22. september 2026 kl. 14:00
  • Opnun tilboða: 22. september 2026 kl. 14:15

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en að loknum tilboðsfresti verða nöfn bjóðenda og verðtilboð kynnt.

Heimild: Vegagerðin

Efni: Vegagerðin býður út nýjan Búðafossveg og 204 metra brú yfir Þjórsá