Home Fréttir Í fréttum Biðraðir á nýrri brú

Biðraðir á nýrri brú

90
0
Biðraðir á nýrri brú
Nýja brúin. mbl.is/Árni Sæberg

Biðraðir á nýrri brú

Langar biðraðir hafa myndast á brúnni yfir Breiðholtsbraut á háannatímum á þeirri viku sem liðin er síðan opnað var fyrir umferð en framkvæmdir hafa staðið yfir í um þrjú ár.

Upphaflega stóð til að þar myndu rísa fullbúin mislæg gatnamót en síðar var ákveðið, að kröfu Reykjavíkurborgar, að þess í stað yrðu þau ljósastýrð, þar sem sú lausn var talin fela í sér minna rask á nærliggjandi umhverfi og betri hljóðvist.

Nokkur ágreiningur var þó meðal bæjaryfirvalda í Kópavogi og Reykjavík um þá breytingu þar sem bæjaryfirvöld í Kópavogi bentu á að ljósastýrðu gatnamótin myndu hægja verulega á umferð um veginn og að sú útfærsla væri því verri kostur en mislæg gatnamót.

Sú spá virðist hafa ræst, vegfarendum til mikillar óánægju og ama. Í bókun á bæjarráðsfundi Kópavogs í gær samþykkti bæjarstjórinn Ásdís Kristjánsdóttir að mikilvægt væri að endurskoða gatnamótin til að tryggja sem best flæði um þau og hefur hún nú þegar sent ábendingar til Vegagerðarinnar um vanstillingu ljósanna.

Heimild: Mbl.is