
Ekki meira malbikað í brekkunni
Malbikun á Ártúnsbrekku er nú lokið en nokkrir kaflar hennar hafa verið malbikaðir nú í sumar. Á myndinni má sjá nýja miðjuakrein Ártúnsbrekkunnar til austurs en Morgunblaðið hefur áður fjallað um ástand hennar.
Hún hafði komið illa undan vetri og höfðu fyrir malbikunina myndast þar djúp hjólför sem grafin voru í malbikslagið, með tilheyrandi hættu fyrir ökumenn. Hjólför eru enn á öðrum akreinum.
Malbikunarframkvæmdum er þó ekki alveg lokið á þessum slóðum en til stendur að malbika 1,6 km kafla á miðjuakrein Miklubrautar frá mislægu gatnamótunum að Grensásvegi, þar sem einnig hafa myndast djúp hjólför. Nokkuð hefur borið á því í sumar að fresta hafi þurft vegaframkvæmdum vegna veðurs.
Heimild: Mbl.is











