Home Fréttir Í fréttum Sex létust í eldsvoða í Brussel

Sex létust í eldsvoða í Brussel

25
0
Sex létust í eldsvoða í Brussel
Eldsvoðinn kom upp í Oxy-turninum, sem er enn í byggingu. AP – Marius Burgelman

Sex létust í eldsvoða í Brussel

Sex manns létust í eldsvoða á byggingarsvæði í miðborg Brussel í gærmorgun. Fljótlega tókst að slökkva á eldinum en tvær lyftur voru fastar. Þegar slökkviliðsmenn opnuðu aðra lyftuna fundust þar sex látnir. Fleiri fórnarlömb gætu verið í byggingunni.

Sex manns létust í eldsvoða sem kviknaði á byggingarsvæði í miðborg Brussel í gærmorgun.

Eldurinn kom upp í Oxy-turninum sem er enn í byggingu. Hann stendur skammt frá Grand Place-torginu í miðborg Brussel. Gert er ráð fyrir að í húsinu verði íbúðir, hótel, veitingastaðir og barir þegar framkvæmdum lýkur.

Tvær lyftur voru fastar

Slökkvilið var kallað á vettvang um klukkan átta í gærmorgun að staðartíma. Fljótlega tókst að ráða niðurlögum eldsins en við leit kom í ljós að reykur og eldur höfðu borist í lyftustokka þar sem tvær lyftur voru fastar.

Björgunaraðgerðir stóðu yfir í nokkrar klukkustundir. Þegar slökkviliðsmenn opnuðu aðra lyftuna fundust þar sex látnir.

Filippus Belgíukonungur og Bart De Wever, forsætisráðherra Belgíu, ræða við Philippe Close, borgarstjóra Brussel, á vettvangi.
AP / Marius Burgelman

Philippe Close, borgarstjóri Brussel, var viðstaddur frá morgni. Filippus Belgíukonungur og Bart de Wever forsætisráðherra mættu líka á vettvang.

Samkvæmt RTBF, belgíska ríkismiðlinum fyrir frönskumælandi íbúa, gætu fleiri fórnarlömb enn verið í byggingunni. Þrjár lyftur eru í byggingunni og viðbragðsaðilar hafa enn ekki leitað í einni þeirra. Sú lyfta hefur verið notuð undir vöruflutninga.

Heimild: Ruv.is

Efni: Sex létust í eldsvoða í Brussel