Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir að hefjast við hverfi á óbyggðri umferðareyju

Framkvæmdir að hefjast við hverfi á óbyggðri umferðareyju

178
0
Yfirlitsmynd af svæðinu þar sem Arnarland rís á næstu árum. RÚV – Kristinn Þeyr Magnússon

Framkvæmdir að hefjast við hverfi á óbyggðri umferðareyju

Framkvæmdir við Arnarnesháls hefjast bráðum. Þar á að rísa nýtt hverfi sem heitir Arnarland. Til stendur að reisa 450 íbúðir á svæðinu sem er um 9 hektarar að stærð.

RÚV / Kristinn Þeyr Magnússon

Garðabær hefur óskað eftir tilboðum í eftirlitsverk á Arnarneshálsi vegna fyrirhugaðra framkvæmda. Í tilkynningu á Útboðsvefnum segir að verkið feli í sér gatna- og stígagerð auk lagnavinnu vegna uppbyggingar í nýju hverfi.

Til stendur að byggja nýtt hverfi í landi Garðabæjar, á mörkum sveitarfélagsins og Kópavogs. Hverfið mun heita Arnarland. Skipulagssvæðið er um 9 hektarar að stærð og afmarkast af Hafnarfjarðarvegi til vesturs, Arnarnesvegi til suðurs, Fífuhvammsvegi til austurs og sveitarfélagsmörkum Garðabæjar og Kópavogs til norðurs.

RÚV / Kristinn Þeyr Magnússon

Á heimasíðu verkefnisins kemur fram að í deiliskipulagstillögu hverfisins sé gert ráð fyrir um 450 íbúðum, ýmissi nærþjónustu og heilsuklasa þar sem fjölbreytt fyrirtæki tengd heilsu og hátækni geti haft aðsetur.

Garðabær

Gatnagerð á að vera lokið 1. apríl 2027.

Heimild: Ruv.is