
Stækka hótel norður á Ströndum
Stækkun um átta herbergi var á dögunum tekin í notkun á gistiheimilinu Urðartindi í Norðurfirði á Ströndum. Þar voru fyrir sex gistirými, það er í smáhýsum og í gamalli hlöðu sem breytt hafði verið til nýrra nota.
Þegar sýnt var að eftirspurn væri til staðar var haldið áfram og fjárhúsi, sem stendur hlöðuna, breytt. Það er sú viðbót sem nú er komin og er framtak þeirra Arinbjörns Bernharðssonar og Sigríðar Birnu Magnúsdóttur konu hans.
„Ferðafólki sem kemur hingað norður í Árneshrepp fjölgar með hverju árinu. Því erum við að svara með þessari starfsemi okkar og viðbótinni nú,“ segir Arinbjörn. Hann er úr Norðurfirði, ólst þar upp og hefur alltaf haldið sterkum tengslum við svæðið. Fjölskyldan á nú sitt annað heimili nyrðra og fyrir 15 árum hófu þau gistirekstur sinn, starfsemi sem hefur eflst með árunum.
Heimild: Mbl.is











