Milljarða framkvæmdum í Jarðböðunum lokið
Jarðböðin við Mývatn voru opnuð á ný í gær eftir umfangsmiklar endurbætur sem kostuðu milljarða króna. Ný móttöku- og þjónustubygging hefur verið tekin í notkun auk þess sem aðstaðan hefur verið stækkuð og nýju upplifunarsvæði bætt við.
Að sögn Guðmundar Þórs Birgissonar, framkvæmdastjóra Jarðbaðanna, hefur markmiðið verið að byggja upp nútímalega aðstöðu sem falli vel að náttúrunni í kring. Við hönnunina var meðal annars nýtt efni sem féll til við framkvæmdirnar og byggingin löguð að hraunmyndunum á svæðinu.
Taka upp nýjar leiðir
Með breytingunum geta gestir valið á milli þriggja mismunandi þjónustuleiða. Þá hefur nýr hluti lónsins verið tekinn í notkun, ásamt lónsbar, gufuhelli og aðstöðu fyrir nudd, sem verður í fyrsta sinn í boði hjá Jarðböðunum.
„Við erum að halda í það sem fólk hefur alltaf elskað staðinn en um leið bæta við nýjum upplifunum sem gera heimsóknina enn betri,“ segir Guðmundur.
Jarðböðin við Mývatn voru opnuð árið 2004.
Heimild: Mbl.is












