Eldur í þaki fjögurra hæða blokkar í Bryggjuhverfi
Allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var kallað út á tíunda tímanum vegna elds í þaki blokkar í Bryggjuhverfi í Reykjavík. Verið var að brenna þakpappa og eldurinn breiddist um allt þakið, sem er gjörónýtt.

RÚV / Ragnar Visage
Eldur kviknaði í þaki fjögurra hæða blokkar við Naustabryggju í Bryggjuhverfi í Reykjavík. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi fjóra dælubíla, tvo körfubíla og allan tiltækan mannskap á staðinn.
Tilkynning barst um eldinn klukkan 10:32. Íbúar voru búnir að rýma húsið þegar slökkvilið kom á staðinn og ekki þurfti að flytja neinn til aðhlynningar á sjúkrahús.

Lárus Petersen, varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, segir iðnaðarmenn hafa verið að brenna pappa á þakinu þegar eldurinn kviknaði. Eldurinn breiddist út um allt þak, í klæðningu og pappa sem þar var fyrir og rífa þurfti upp bárujárn til að komast að eldinum.
Búið er að slökkva eldinn en verið er að skoða hvort einhverjar glæður séu eftir. Þakið er allt ónýtt.


RÚV / Ragnar Visage
Fréttin var uppfærð.
Heimild: Ruv.is












