Hafnarfjarðarbær býður út vetrarþjónustu stofnanalóða til ársins 2030
Hafnarfjarðarbær hefur auglýst útboð á vetrarþjónustu stofnanalóða í Hafnarfirði fyrir tímabilið 2026–2030. Verkefnið nær til snjómoksturs og hálkuvarna á lóðum bæjarins og er ætlað að tryggja öruggt aðgengi að stofnunum sveitarfélagsins yfir vetrarmánuðina.
Útboðið er til fjögurra ára, með heimild til að framlengja samninginn tvisvar sinnum um eitt ár, þannig að gildistími hans getur orðið allt að sex ár.
Fimm vinnusvæði
Hafnarfirði hefur verið skipt upp í fimm vinnusvæði og geta verktakar boðið í eitt eða fleiri svæði eftir eigin vali.
Helstu upplýsingar
- Verkkaupi: Hafnarfjarðarbær
- Útboðsnúmer: hfj-26-5
- Verk: Vetrarþjónusta stofnanalóða í Hafnarfirði 2026–2030
- Tegund: Framkvæmd og þjónusta
- Samningstími: 4 ár með möguleika á tveimur eins árs framlengingum
- Vinnusvæði: 5
- Útboðsgögn afhent: 3. júlí 2026
- Skilafrestur tilboða: 4. ágúst 2026 kl. 10:00
- Opnun tilboða: 4. ágúst 2026 kl. 10:00
Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænum útboðsvef Hafnarfjarðarbæjar.












