Home Fréttir Í fréttum Endurbætur á báðum starfsstöðvum Grunnskóla Fjallabyggðar

Endurbætur á báðum starfsstöðvum Grunnskóla Fjallabyggðar

43
0
Endurbætur á báðum starfsstöðvum Grunnskóla Fjallabyggðar
Myndir: Smári / Trolli.is

Endurbætur á báðum starfsstöðvum Grunnskóla Fjallabyggðar

Miklar framkvæmdir standa nú yfir á báðum starfsstöðvum Grunnskóla Fjallabyggðar með það að markmiði að bæta aðstöðu nemenda og starfsfólks fyrir upphaf nýs skólaárs. Samkvæmt upplýsingum sem Trolli.is aflaði hjá Fjallabyggð er stefnt að því að stærstum hluta framkvæmdanna verði lokið áður en kennsla hefst í ágúst.

Við Grunnskólann á Siglufirði er þessa dagana unnið að viðgerð á múrskemmdum utanhúss. Að þeim loknum verður skólabyggingin máluð að utan, en framkvæmdin er þó háð veðri. Ekki stendur til að skipta um glugga að þessu sinni.

Jafnframt verður endurnýjað gólfefni í inngangi norðanmegin þar sem núverandi dúkur verður fjarlægður og sett epoxy-gólf í staðinn. Þá verða inngangshurðir endurnýjaðar bæði á norður- og suðurhlið skólans.

Einu stærsta verkefni innandyra er þó nýlokið, en skipt hefur verið um alla lýsingu í skólanum. Ný LED-ljós hafa verið sett upp ásamt dimmurum í kennslustofum sem gera starfsfólki kleift að stýra birtustigi betur eftir þörfum.

Berg ehf. annast múrviðgerðir og framkvæmdir við anddyri skólans, L7 sér um málningarvinnuna og Ingvi Óskar hefur séð um uppsetningu nýju LED-lýsingarinnar.

Endurbætur á starfsstöðinni í Ólafsfirði

Við Grunnskólann í Ólafsfirði eru einnig fyrirhugaðar ýmsar endurbætur. Þar verður skipt um gólfdúk í matsal skólans auk þess sem gólf verða flotuð og nýr dúkur lagður í kennslurýmum sem áður voru þrjár stofur en síðar sameinaðar í tvær.

Jafnframt verður ráðist í málningarvinnu og annað smærra viðhald á húsnæðinu. Beðið er eftir að dúkalagningarmaður geti hafið störf svo framkvæmdir geti farið af fullum krafti af stað.

Stefnt er að því að framkvæmdum á starfsstöðinni í Ólafsfirði ljúki fyrir upphaf skólaársins í ágúst. Dúkarinn og Trésmíði ehf., undir stjórn Harðar Óla, annast stærstan hluta framkvæmdanna.

Mynd tekin 3. júlí 2026

Heimild: Trolli.is