Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir við þjóðveginn í Ólafsfirði ganga vel

Framkvæmdir við þjóðveginn í Ólafsfirði ganga vel

76
0
Framkvæmdir við þjóðveginn í Ólafsfirði ganga vel
Myndir: Smári / Trolli.is

Framkvæmdir við þjóðveginn í Ólafsfirði ganga vel

Unnið er af fullum krafti við þriðja áfanga verkefnisins Þjóðvegur í þéttbýli í Ólafsfirði. Magnús Tómasson, eigandi Bás ehf., segir í samtali við Trolli.is að framkvæmdunum miði vel áfram.

Um er að ræða sameiginlegt verkefni Vegagerðarinnar og Fjallabyggðar sem nær yfir hluta þjóðvegarins í gegnum bæinn. Framkvæmdirnar standa yfir til 16. september næstkomandi og nær framkvæmdasvæðið frá Ægisbyggð að Tjarnarstíg sunnan vegar og frá Ólafsvegi að Garðstíg norðan vegar.

Í verkinu felst meðal annars endurnýjun gangstétta, lagning nýs göngu- og hjólastígs auk endurbóta á hitaveitu- og raflögnum.

Nánar um framkvæmdina og umfang verkefnisins má lesa með því að smella hér.

Heimild: Trolli.is