FSRE býður út endurbætur á hjúkrunarheimilinu á Höfn í Hornafirði
Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) hefur auglýst útboð á endurbótum á núverandi hjúkrunarheimili við Víkurbraut 29 á Höfn í Hornafirði, fyrir hönd Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins (FRN). Verkefnið er liður í áframhaldandi uppbyggingu hjúkrunarþjónustu á Höfn, þar sem nýtt hjúkrunarheimili hefur verið í byggingu samhliða endurbótum á eldra húsnæðinu.
Um er að ræða almennt útboð samkvæmt lögum um opinber innkaup nr. 120/2016 og ÍST 30:2012. Nákvæmt umfang framkvæmdarinnar kemur fram í útboðsgögnum FSRE.
Helstu upplýsingar
- Verkkaupi: Félags- og húsnæðismálaráðuneytið (FRN)
- Útboðsaðili: Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE)
- Verk: Endurbætur á hjúkrunarheimilinu á Höfn í Hornafirði
- Staðsetning: Víkurbraut 29, Höfn í Hornafirði
- Útboðsgögn afhent: 3. júlí 2026
- Skilafrestur tilboða: 20. ágúst 2026 kl. 12:00
- Opnun tilboða: 20. ágúst 2026 kl. 13:00
Útboðsgögn eru aðgengileg í rafræna útboðskerfi TendSign, þar sem nánari upplýsingar um framkvæmdina má finna.












