Vegagerðin býður út endurnýjun Helgustaðabrúar á Eskifirði
Vegagerðin hefur auglýst út framkvæmdina „Helgustaðavegur (954) – Forsteypt brú og aðlögun á vegkafla“, sem felur í sér endurnýjun brúar yfir Helgustaðaá og endurbætur á aðkomuvegi austan við Eskifjörð.
Framkvæmdasvæðið er staðsett um 8 kílómetra austan við Eskifjörð á Helgustaðavegi (954). Verkinu er skipt upp í tvo verkhluta: byggingu nýrrar brúar og aðlögun vegar að nýju brúarstæði.
Núverandi brú verður rifin og á meðan framkvæmdum stendur verður komið fyrir bráðabirgðavegi og ræsi til að tryggja umferð um svæðið. Nýja brúin verður forsteypt stokkbrú, reist á sama stað og eldri brúin stendur í dag. Jafnframt verður um 220 metra langur vegkafli endurbyggður við aðkomu brúarinnar.
Helstu magntölur
- Fyllingarefni úr skeringum: 607 m³
- Fyllingarefni úr námum: 558 m³
- Fláafleygar úr námum: 372 m³
- Steypumót: 272 m²
- Steypa: 91 m³
- Bendistál: 12,7 tonn
Samkvæmt útboðsgögnum skal framkvæmdum að fullu lokið fyrir 15. desember 2026, með fyrirvara um að leyfismál valdi ekki töfum.
Útboðsgögn eru aðgengileg í rafræna útboðskerfinu TendSign frá 1. júlí 2026. Tilboðum skal skila rafrænt fyrir kl. 14:00 þann 21. júlí 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en að loknum skilafresti verða nöfn bjóðenda og tilboðsupphæðir birtar.
Heimild: Vegagerðin












